Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Trúðurinn Sunny (7 álit)

í The Sims fyrir 21 árum, 1 mánuði
Var að byrja að spila þetta (því er nú verr og miður, maður verður alveg háður!) og var að bæta við Unleashed og fleiru. Þá bættist m.a þessi óþolandi trúður við! Hvað á maður að gera við hann? Hélt vöku fyrir liðinu þrátt fyrir að hafa slegið hann og sagt að hypja sig. Fór ekki fyrr en ég hringdi á Clowncatcher. Kostaði 500 dollara!! Er það eina ráðið?

Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a

Eru einhverjir síamskettir með gamla laginu eftir? (3 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Síamskötturinn minn dó fyrir 2 árum þegar hann var orðinn 20 ára gamall. Einstaklega fallegur Seal Point með fallegu andlitslagi og eðlilegur í vextinum. Nú virðist sem þessir teygðu kettir séu alls ráðandi. Risastór eyru, andlit sem lítur út eins og tekið hafi verið í trýnið á þeim og það togað og togað. Mér finnst þeir hræðilegir. Eru einhverjir kettir orðnir eftir hérlendis með eldra laginu? Áður en þeir fóru nánast eingöngu að rækta þessa nýju furðulegu gerð? Ein forvitin.

<a...

Kindergarten Cop: Hvað hét sagan sem hann las fyrir börnin? (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Veit einhver hvað bókin hét sem Arnold les upp úr fyrir börnin?

Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a

Bestu smásagnahöfundarnir (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 1 mánuði
Lát heyra, hverja heldur fólk upp á og af hverju? Hvaða söfnum er mælt með? Er að lesa Óvænt endalok eftir Roald Dahl um þessar mundir. Hann er auðvitað sígildur. Skondið hvað maður mundi eftir sumum sögunum frá því að maður sá þættina í gamla daga. Hann er mjög fær penni og sögurnar skemmtilegar aflestrar og hugmyndirnar margar hverjar frumlegar. Enn sem komið er held ég mest upp á hann af þeim höfundum sem ég hef kynnst og sem sinna smásögum. Orðið er laust :)

<a...

Lélegt hjá spunaspilurum! (15 álit)

í Spunaspil fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég mætti galvösk á Fáfnismótið um helgina og bjóst við fínni stemningu og fjöri. Þegar ég mætti á staðinn blasti hálftómur salur við. Og það átti ekki mikið eftir að bætast við. Stjórnendur voru að standa sig með prýði að flestra áliti en spilarana vantaði. Sunnudagurinn kom enn slakar út. Hvað er eiginlega að fólki? Af hverju mættuð þið ekki? Finnst ykkur svona hundleiðinlegt að spila á móti eða var þessi helgi af einhverjum ástæðum óheppileg? Ég á bara ekki til orð til að lýsa gremju minni...

Á virkilega ekki að fjölmenna á mótið? (9 álit)

í Spunaspil fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég var að skrá mig á mótið og þeir voru sorglega fáir sem búnir voru að skrá sig! Á ekki að mæta og skemmta sér eins og rollurum einum er lagið? Það er boðið upp á áhugaverða hluti þarna, töluverð flóra bara í ævintýrum. svona, endilega drífa sig og skrá sig! Kveðja, Kisa.

Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a

Hverjir ætla á Fáfnismótið? (0 álit)

í Spunaspil fyrir 21 árum, 2 mánuðum

Hver hefur skrifað sögur um karakterinn sinn? (6 álit)

í Spunaspil fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Langaði að forvitnast um það. Ég hef í raun ekki skrifað heila sögu en ég hef verið býsna ítarleg þegar stjórnandinn bað um bakgrunnssögu =)) Hef alltaf skilaði lágmarki 4-5 síðum. Svo hef ég einu sinni skrifað sem frásögn eitt ævintýri, það varð svona 20 bls kannski. Þetta er náttúrulega fjársjóður, rpg ævintýrin okkar, sem er sárlega vannýttur. Elminster og hans vinir eru allir rpg karakterar en ég veit eiginlega ekki um fleiri. Mér finnst þetta eiginlega svolítið skrýtið, því rpg fólk er...

Fleiri smásagnasöfn? (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hafið þið rekist á fleiri smásagnasöfn á netinu en eru hér í hlekkjasafninu? Í rauninni bara eitt íslenskt, þetta sem Netútgáfan stendur á bak við. Kv. Kisa.

Rithringur.is</a

Rithringurinn hefur opnað! (3 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ágætu höfundar, Rithringur.is opnaði í dag og við hvetjum alla þá sem áhuga hafa á skrifum og ritlist að líta við. Eins og fram hefur komið áður er Rithringurinn vettvangur á netinu fyrir höfunda. Þar geta þeir lagt fram frumsamið efni og fengið umsagnir um það frá öðrum höfundum, auk þess sem þeir gagnrýna verk annarra. Einnig er þarna að finna spjallsvæði, greinasafn og hlekki. Síðar verða þarna einnig gagnlegar æfingar og afkastaskema. Netslóðin er sem sagt: www.rithringur.is

Rithöfundar lesa upp úr verkum sínum í kvöld (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Rithringur.is opnar í dag, 1. febrúar, og verður af því tilefni haldið kynningarkvöld á Celtic Cross (Hverfisgötu 26)í kvöld, laugardag, kl 20:00. Umsjónarmenn vefsins munu kynna hlutverk hans sem vettvangs fyrir rithöfunda og annað áhugafólk um ritlist. Að auki munu rithöfundar lesa upp úr verkum sínum og spjalla um ritlistina. Gestir verða: Auður Jónsdóttir Gerður Kristný Jón Atli Jónasson Rúnar Helgi Vignisson og Viktor Arnar Ingólfsson. Vonumst til að sjá sem flesta!

Rithöfundar lesa upp úr verkum sínum í kvöld (0 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Rithringur.is opnar í dag, 1. febrúar, og verður af því tilefni haldið kynningarkvöld á Celtic Cross (Hverfisgötu 26)í kvöld, laugardag, kl 20:00. Umsjónarmenn vefsins munu kynna hlutverk hans sem vettvangs fyrir rithöfunda og annað áhugafólk um ritlist. Að auki munu rithöfundar lesa upp úr verkum sínum og spjalla um ritlistina. Gestir verða: Auður Jónsdóttir Gerður Kristný Jón Atli Jónasson Rúnar Helgi Vignisson og Viktor Arnar Ingólfsson. Vonumst til að sjá sem flesta!

Rithringur.is (0 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Mig langar að vekja athygli þeirra sem eru að skrifa sögur eða greinar sjálfir á að opnað hefur verið vefsvæði sem hugsað er sem umræðuvettvangur fyrir höfunda. Tilgangurinn er að þarna geti fólk skráð sig og lagt svo inn sögur, bæði stuttar og langar, sem og greinar og annað efni og látið aðra höfunda gagnrýna það. Gagn þess að láta gagnrýna skrif sín svo maður geti bætt og breytt er ómetanlegt og til þessa hefur ekki verið neinn eiginlegur vettvangur til þess hér á landi, amk ekki neinn...

Nýr vettvangur fyrir skapandi skrif: Rithringur.is (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Mig langar að vekja athygli ykkar sem eru að skrifa að opnað hefur verið vefsvæði sem hugsað er sem umræðuvettvangur fyrir höfunda. Tilgangurinn er að þarna geti fólk skráð sig og lagt svo inn sögur, bæði stuttar og langar, sem og greinar og annað efni og látið aðra höfunda gagnrýna það. Gagn þess að láta gagnrýna skrif sín svo maður geti bætt og breytt er ómetanlegt og til þessa hefur ekki verið neinn eiginlegur vettvangur til þess hér á landi, amk ekki neinn sem opinn hefur verið...

Úr Silmarillion? (7 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Er einhver sem veit þetta: Þegar ég sá myndina fyrst fór það alveg rosalega fyrir brjóstið á mér atriðið þar sem góði vitri fullkomni álfakóngurinn reynir að fá vonda vonda manninn (Isildur) til að henda hringnum og hann neitar að henda honum í dyngjuna. Fannst alger óþarfi að koma með þetta. Svo vorum við að horfa á myndina í gær og þá fórum við að spá hvort þetta atriði væri nokkuð tekið úr Silmarillion? Veit það einhver? Eigum hana heima en þykir of leiðinleg til að lesa hana ;) Og bara...

íbúðin (1 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 5 mánuðum
hæ hæ samstarfskona er að leita sér að íbúð, en þessi leigist eingöngu með húsgögnum er það ekki? Kv. Kisa.

Edesa uppþvottavél (4 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Datt í hug hvort einhver ætti uppþvottavélar frá Edesa (seldar í Raftækjaverslun Íslands). Erum að spá í einni og vildum heyra hvort einhver hefði reynslu af þeim. Þessa dagana er tilboð á 2VE-21S gerð frá þeim. Ef þið eigið ekki uppþvottavél, eigið þið einhver önnur heimilistæki frá þessum framleiðanda? Kveðja, Kisa.

Icewinddale 2: hjálp!! (2 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Heima erum við að spila ID2 í einhvern tíma og erum reyndar í þessum sama ískastala og minnst er á hér að neðan. Vandamálið er að Oria er ALLTAF ósýnileg. Við verðum Battlesquare masters, komumst inn í herbergið hennar og þar eigum við að sjá hana og 3 úlfa. Úlfarnir eru þarna og hún líka, en við sjáum hana aldrei. Hún talar (ennþá skv. öllum walkthroughs sem við höfum séð) en hún brýtur aldrei neinn staf, hún er ósýnileg alveg frá upphafi. Við förum inn í battlesquare salinn og stillum á...

Hvernig fannst ykkur mótið? (0 álit)

í Spunaspil fyrir 21 árum, 5 mánuðum

Rifrildi (10 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það er mjög athyglisvert að rekast hingað inn á Hunda svæðið á Huga, gerði það í fyrsta sinn í morgun. Hef ekki séð annars staðar á Huga (ennþá amk) eins mikið af rifrildi og svívirðingum og er hér í gangi. Umhugsunarvert.

Er einhver að selja bruggunargræjur (0 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ef svo er, endilega hafið samband. Kveðja, Sigrún

Og með útgáfu af Laran! =) (4 álit)

í Myndasögur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
flott mynd=) takk fyrir að taka þátt í þessu!

Að sameinast um bíl (2 álit)

í Ferðalög fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Daginn, Ef fólk á ekki bíl en vill komast eitt og annað um landið og rútur henta ekki af einhverjum ástæðum (tími,peningar o.s.frv) og vill frekar komast í bíl hjá einhverjum og borga þá hluta bensíns,hvernig fer fólk þá að? Er einhver sem veit um stað þar sem maður skráir sig td til Akureyrar og óskar eftir fari þangað? Er hægt að spyrja einhvers staðar vörubílsstjóra hvort þeir taki farþega? Er að spyrja fyrir erlenda vinkonu sem vill ferðast um landið í vetur, er hér í námi. Kveðja, Kisa.

DrawClub tillaga? RPG karakterinn Laran Rey (8 álit)

í Myndasögur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hæ hæ, Að tillögu Alliat birti ég hér lýsingu á rpg karakternum mínum, rogue-inum Laran Rey sem ég er að spila í heimatilbúnu kerfi sem gerist úti í geimnum í framtíðinni. Það væri alveg ofsalega spennandi að sjá nokkra spreyta sig á þessu! Hér er svo lýsingin: RPG karakter: Laran Rey Líkamleg einkenni/lýsing Laran er kvenkyns, 28 ára. Hún er Koter, sem samsvarar álfum. Hefur því afturkempt hár og þessi uppmjóu álfaeyru. Hún er 185cm og mjög grannvaxin en er samt stælt en ekki horrengla. Hún...

Vitið þið um einhvern sem tekur að sér... (0 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 21 árum, 7 mánuðum
að teikna portrett af karakterum? Kveðja, Kisa
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok