Rithringur.is opnar í dag, 1. febrúar, og verður af því tilefni haldið kynningarkvöld á Celtic Cross (Hverfisgötu 26)í kvöld, laugardag, kl 20:00.

Umsjónarmenn vefsins munu kynna hlutverk hans sem vettvangs fyrir rithöfunda og annað áhugafólk um ritlist. Að auki munu rithöfundar lesa upp úr verkum sínum og spjalla um ritlistina.

Gestir verða:

Auður Jónsdóttir
Gerður Kristný
Jón Atli Jónasson
Rúnar Helgi Vignisson
og Viktor Arnar Ingólfsson.

Vonumst til að sjá sem flesta!