Heima erum við að spila ID2 í einhvern tíma og erum reyndar í þessum sama ískastala og minnst er á hér að neðan. Vandamálið er að Oria er ALLTAF ósýnileg. Við verðum Battlesquare masters, komumst inn í herbergið hennar og þar eigum við að sjá hana og 3 úlfa. Úlfarnir eru þarna og hún líka, en við sjáum hana aldrei. Hún talar (ennþá skv. öllum walkthroughs sem við höfum séð) en hún brýtur aldrei neinn staf, hún er ósýnileg alveg frá upphafi. Við förum inn í battlesquare salinn og stillum á Inner Sanctum á Mode activtor tækinu og hvað fáum við? Jú, Cannot be activated, under development. Við erum búin að leita og leita á netinu en enginn minnist á þetta vandamál. Það er ekki séns að sigra Oriu ósýnilega svo við sjáum fram á að verða bara að hætta!!
Hjálp! Hefur einhver lent í þessu sama??