Ágætu höfundar,

Rithringur.is opnaði í dag og við hvetjum alla þá sem áhuga hafa á skrifum og ritlist að líta við.

Eins og fram hefur komið áður er Rithringurinn vettvangur á netinu fyrir höfunda. Þar geta þeir lagt fram frumsamið efni og fengið umsagnir um það frá öðrum höfundum, auk þess sem þeir gagnrýna verk annarra. Einnig er þarna að finna spjallsvæði, greinasafn og hlekki. Síðar verða þarna einnig gagnlegar æfingar og afkastaskema.

Netslóðin er sem sagt: www.rithringur.is