Daginn,
Ef fólk á ekki bíl en vill komast eitt og annað um landið og rútur henta ekki af einhverjum ástæðum (tími,peningar o.s.frv) og vill frekar komast í bíl hjá einhverjum og borga þá hluta bensíns,hvernig fer fólk þá að? Er einhver sem veit um stað þar sem maður skráir sig td til Akureyrar og óskar eftir fari þangað?

Er hægt að spyrja einhvers staðar vörubílsstjóra hvort þeir taki farþega?

Er að spyrja fyrir erlenda vinkonu sem vill ferðast um landið í vetur, er hér í námi.

Kveðja,
Kisa.