Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Khan
Khan Notandi frá fornöld 628 stig
Áhugamál: Heilsa, Bardagaíþróttir

Bardaginn hans Árna 26. feb. (spilling) (3 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 13 árum, 1 mánuði
Árni sigraði köggulinn Kevin Reed sl. laugardagskvöld með hliðarhengingu (side choke). Snilldar árangur hjá Árna og vonandi heldur hann áfram að vinna svona. Meira um sigurinn á combat.is: http://combat.is/gym/?p=1249

Uppáhalds MMA maður fyrr og síðar (58 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 13 árum, 9 mánuðum
Var að hugsa um að senda inn könnun um uppáhalds MMA mann fyrr og síðar en finnst ég vera orðinn svo ryðgaður að ég vildi fá álit ykkar um þá sem mætti bæta við. Alla vega þeir sem mér dettur í hug núna eru: Bas Rutten Frank Shamrock Ken Shamrock Sakuraba Wanderlei Silva Cro Cop Tito Ortiz GSP “Minotaur” Nogueira Fedor Emalienko Matt Hughes Royce Gracie Rickson Gracie Chuck Lidell Shogun Rua Randy Couture

Enn eitt dauðsfallið í MMA (12 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 13 árum, 10 mánuðum
http://msn.foxsports.com/boxing/story/mma-fighter-Michael-Kirkham-dies-after-debut-fight Er ekki bara best að einbeita sér að glímuíþróttunum?

Norðurlandamótið í Júdó um helgina (2 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Nk. laugardag (8. maí) verður Norðurlandamótið í júdó haldið í Laugardalshöllinni. Mótið hefst kl. 10:00 og verða úrslita- og bronsglímur kl. 15:00. Síðan verður keppt í unglingaflokkum á sunnudeginum frá 10:00-13:00. Hvet alla áhugasama um að mæta og hvetja okkur Íslendingana til frækinna dáða.

Ísl. mót '10 í júdó (2 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 14 árum
Datt í hug að pósta auglýsingu um Ísl. mótið í júdó sem haldið verður n.k. laugardag í Laugardalshöll (gömlu). Mótið hefst kl. 10:00. Hvet alla áhugasama um að mæta og njóta áhorfsins.

Nýjar íþróttir á Ólympíuleikana (7 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Nú á að bæta við gólfi og rugby á Ólympíuleikana sem haldnir verða í Rio 2016. Einnig var Karate ein af þeim íþróttum sem bárust í tal. http://sportsillustrated.cnn.com/2009/writers/brian_cazeneuve/10/09/golf.rugby/index.html?cnn=yes Súrt að BJJ hafi ekki verið nefnt þar sem ég tel þá íþrótt eiga fullt erindi þar. Væri ekki leiðinlegt að Gunni myndi nappa fyrsta gulli Íslendinga á þeim vettvangi.

Hvet landsmenn að æfa bardagalist (15 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Nú þegar kreppan herjar á fólk hvet ég landsmenn til þess að æfa bardagalistir. Það er góð leið til þess að losna við spennu og koma á góðu andlegu jafnvægi. Líka gott fyrir marga að uppgötva það að peningar skipta ekki öllu máli í lífinu.

Þormóður á ÓL (9 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Þormóður mun keppa fyrir hönd Íslands í júdó á ólympíuleikunum í Peking í sumar. Þetta er frábær árangur hjá honum og megi honum ganga sem allra best. Þess má geta að 12 ár eru síðan að íslenskur júdómaður glímdi á ólympíuleikum en það var Vernharður Þorleifsson sem keppti í Atlanta '96.

"Von um sæti á OL er hugsanlega úti" (26 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Vonbrigði að Björn Þorleifsson skyldi ekki komast á olympíuleikana, sérstaklega í ljósi þess að hann hefur verið rankaður #1 í Evrópu. Veit einhver hvort hann eigi ennþá einhvern séns á komat til Peking í sumar?

Könnunin (17 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Hvurs lags skandall er þetta eiginlega? Enskan að taka yfir íslenskuna? Mér finnst nú að hugarar ættu finna sóma sinn í því að nota íslenskuna og vera stoltir af því!

Fólk að senda inn sjálfsmyndir á Heilsuáhugamálið (11 álit)

í Heilsa fyrir 17 árum, 1 mánuði
Ég var að spá hvernig almennt álit á þessum sjálfsmyndasendingum væri… ég hef svo sem ekkert mikið á móti þessu en mér finnst þetta samt vera frekar steikt. Fólk sendandi inn myndir og spyrjandi: “Hvernig finnst ykkur ég eiginlega?” Er ekki bara auðveldast að líta í spegil og dæma sjálfur…

Könnunin (7 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 1 mánuði
Júdó og BJJ gallarnir eru nú nokkurn veginn nákvæmlega eins. Bara fleiri sem æfa BJJ á Huga, þess vegna fá þeir hærri einkunn… ;)

Nálgast í K-1 GP (4 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Nú styttist í K-1 Grand Prix en það verður haldið á laugardaginn í Tokyo dome og mun ég sennilega fara þangað og sjá það live. Ég býst við því að áhorfendur muni vera tugirþúsunda enda er þetta stærsta kickbox keppni sem haldin er ár hvert. Cardið er líka verulega spennandi en við erum að tala um Ernesto Hoost, Remy Bonjavsky, Semy Schilt o.s.frv. Ég hlakka til að skrifa grein að keppninni liðinni.

Box í Kaplakrika (2 álit)

í Box fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég frétti að Óskar Luis Justo væri byrjaður að kenna í Kaplakrika. Veit einhver hvenær æfingarnar eru?

Birth of the Federation (1 álit)

í Sci-Fi fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Er einhver hér sem á eintak af Birth of the Federation frá Microprose? (Btw. best Star Trek leikur sem hefur verið gerður imo). Glataði mínu eintaki fyrir áralöngu og verð að eignast hann! ;)

Box klúbbar (5 álit)

í Box fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Mér skilst að það sé kennt á a.m.k. tveimur stöðum hér á Rvk svæðinu. HR og Hamar. Það var ekkert mál að finna upplýsingar um HR en veit einhver e-ð um Hamar, s.s. hvenær æfingar eru þar?

12 Rounds (4 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Getur einhver gefið mér upplýsingar hvað er verið að kenna í æfingarstöðinni, hverjir kenna hvað og klukkan hvað?

Mosley vs. Wright (1 álit)

í Box fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ekki getur einhver sagt mér hvernig Shane Mosley/Wrinkly Wright bardaginn fór í gærnótt? Varð nefnilega fyrir því óláni að missa af honum.

K-1 á sýn, frh. (3 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já, það var býsna skrautlegt að heyra í Bubba Morthens lýsandi K-1 á sýn í gærkvöldi. Af því sem ég heyrði, fannst mér bara fyndið. Nú tek ég mér þá afstöðu að vera lögfræðingur djöfulsins: Ég sá einn bardaga, þ.e. Akebono vs. Musashi. Akebono er akfeitur fyrrv. Sumoglímumaður á meðan Musashi er japönsk Karate þjóðarhetja. Ég byrjaði að horfa á nýlega eftir að Akebono hafði ráðist á Musashi liggjandi. Fyrir það fær maður rautt spjald og/eða brottvísun. Musashi hefði getað hætt og sigrað en...

Gleðileg jól (1 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég vildi nota tækifærið til að óska öllum gleðilegra jóla. Haldið áfram að æfa stíft og ná markmiðum ykkar :)

Myndir (0 álit)

í Box fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Nú hef ég sent inn 2 myndir upp á síðkastið sem hafa einhverja hluta vegna ekki komist ekki í gegn og verið notaðar. Ef þið viljið að þetta áhugamál fái að dafna almennilega þá mæli ég með því að þið fáið ykkur nýjan admin eða að núverandi taki sig á.

Hvar finnur maður tónlistina? (7 álit)

í Danstónlist fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég var að velta því fyrir mér hvar sé hægt að downloada góðum electronískum lögum, eins og t.d. lögin sem tactic hefur nefnd upp í greinum sínum. Hef reynt Kazaa sem virkar ekki neitt…

www. fastmuscles.com (4 álit)

í Heilsa fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Góð heimasíða fyrir þá sem vilja byggja upp vöðva, hratt.

Olympískar Lyftingar (1 álit)

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Veit einhver hér um stað(i) þar sem hægt er að æfa ofangreinda íþrótt?

Oscar Luis (2 álit)

í Box fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Veit einhver hvar, hvenær og hvort Oscar Luis hafði ætlað sér að þjálfa næsta haust?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok