Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Pit-Bull (1 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég á vinkonu á spáni sem hefur verið að segja mér hryllingssögur af Pit-bull. Hér er ein sem ég sá á dog.com May 08, 2002 PERU, Ind. – A man who slept on a couch as his infant son was mauled by the family's pit bull has been sentenced to three years in prison. Brad Williamson received a 10-year sentence Monday, but Miami Superior Court Judge Dan Banina suspended four years and ordered Williamson to serve three years in a state prison. He also ordered Williamson to serve the remaining three...

Ken Follett - Dean Koonts/z (3 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hefur einhver lesið eitthvað eftir Ken F? Mín fyrsta bók sem hann skrifar og mér fannst hún hreinlega æðisleg!! Hver hefur lesið eitthvað eftir Dean K? Man ekki alveg hvernig eftirnafnið er skrifað.

Tannburstar þú hundinn þinn? (0 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 11 mánuðum

Karl-hundaeigendur hjálp! (9 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég er með einn rúmlega tveggja ára og hann hefur ekki farið á tík né er hann að hömpa allt eða alla sem hann sér. Ég spyr, er eðlilegt að stundum sé svona ljósleitt “gums” í tippinu hans? Hann sleikir þetta alltaf þegar hann sér þetta, og að mér virðist þá er þetta (útferð?)mjög oft hjá honum. Er þetta eðlilegt? Ég var með hann hjá doksa um daginn en gleymdi alveg að spyrja um þetta, þið hljótið að vita eitthvað um þetta…eða hvað? Með von um svör.

Heitt trýni - kalt trýni (7 álit)

í Hundar fyrir 22 árum
Nú er eðlilegt að trýni á hundum séu köld og blaut ekki satt? Afhverju er trýnið á mínum stundum heitt á kvöldin? Nú er ekki heitt í þessarri íbúð sem ég er í og nefið á mér t.d. er alltaf ísklalt hérna inni. Þannig að ekki getur það verið það. Veit einhver afhverju trýnið er heitt a´mínum á kvöldin? Hann er ekkert slappari en venjulega…

Allur er varinn góður. Vínber og rúsínur (2 álit)

í Hundar fyrir 22 árum
Ég þekki borzoi-hundaræktanda í n-ameríku og hún var að senda mér póst sem hún fékk sendann frá borzoi póstlista úti. Í honum er varað við því að gefa hundum vínber og rúsínur. Hér er greinin; Dear friends, The ASPCA-run Animal Poison Control Center is working hard to get the word out to people that raisins and grapes are both considered toxic to dogs now. This is a relatively recent revelation, one that is painfully close to my heart since I personally had a healthy, young 70-lb male Irish...

Uppáhaldstegundirnar ykkar? (36 álit)

í Hundar fyrir 22 árum
Mig langar að forvitnast aðeins um hvaða tegundir eru í uppáhaldi hjá ykkur hérna á Hugi.is Ég er með blöndu; Golden Retriever/Collie/Gordon Setter og þessi hundur er bara milljón. Hann er einsog hugur minn í næstum einu og öllu, það er reyndar smá ströggl í honum þegar hann er í ólinni og svo lætur hann aðeins vita af sér (bara með urri samt) ef eru aðrir karlhundar nálægt - smá töffarastælar. Ok, nóg um hann í bili. Hverjar eru uppáhaldstegundarnar ykkar? Mínar eru; (einsog sést er ég...

Eyrnabólga í hundum. (14 álit)

í Hundar fyrir 22 árum
Voffinn minn er kominn með eyrnabólgu aftur :( Hann fékk hana síðasta vetur og loksins þegar ég fór með hann til læknis þá var hann með bullandi. Ég tók þá ekkert eftir neinu fyrr en seint og síðar meir en hann var alltaf að klóra sér og orðinn rauður inní eyrunum og með óvenju mikinn eyrnamerg. Um daginn þegar ég var að hreinsa úr eyrunum fannst mér vera óvenju mikið af skít og fór út frá því að taka eftir því að hann var farin að klóra sér óvenju mikið og jafnvel “rymja” í leiðinni, (þið...

Skaðræðisöskur? (0 álit)

í Dulspeki fyrir 22 árum
Mig dreymir að ég sé í stríði og svo sé ég hvar kjarnorkuoddurinn nálgast rétt hjá mér og rek upp þetta líka skaðræðisöskur og vaknaði þá upp með andfælum. Vitiði hvort það er einhver merking í þessu?

Hve miklir peningar í fermingargjöf? (16 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum
Er að forvitnast um gjafirnar sem fermingarbörnin fá. Var í einni veislu þar sem fermingarbarnið fékk yfir 100þús í peningum. Er þetta það sem gengur og gerist eða er þetta MIKIÐ? Spyr sá sem ekki veit. Þetta er fyrir utan pakkana.

Fermingargjafir - how much $ ? (6 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum
Er að forvitnast um gjafirnar sem fermingarbörnin fá. Var í einni veislu þar sem fermingarbarnið fékk yfir 100þús í peningum. Er þetta það sem gengur og gerist eða er þetta MIKIÐ? Spyr sá sem ekki veit.

Vor í lofti og kúkur útúm allt... (0 álit)

í Hundar fyrir 22 árum
Var í smá morgungöngu með hvutta og fann lyktina af vorinu… ég held bara að það sé að koma! Það er rigning og allur snjór bráðinn og ég labbaði fremur óvanalega leið og úfff ég hrökklaðist bara tilbaka á sama gamla staðinn okkar þar sem hann er vanur að kúka og þar sem skíturinn er þrifin….svo mikill var gíturinn á hinum grasblettnum. En er þetta ekki bara hollt fyrir grasið? Einskonar áburður? Þá verður þarna grænasti grasblettur í bænum! MUNUM AÐ PIKKA UPP EFTIR “BÖRNIN” OKKAR;)

crazy cows... (3 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 1 mánuði
A farmer has 5 cows and decides it's time to breed them so he takes them in his truck to a neighboring farm.The neighbor's boar and the farmers cows do the deed and the farmer loads them in his truck and leaves. First he asks the other farmer how he will know if the breeding was a success. If you get up in the morning and they are lying in the mud , then it was successful. If they are standing then you need to bring them back for a second try. Next morning, all the sows are standing by the...

Hundar með Hip-displaysia eða gigt (4 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Það er búið að vera mikið rætt um hip-displaysu og í sambandi við það að passa sig á að of-hreyfa (ofreyna)hundana sína meðan þeir eru mjög ungir og bein og vöðvar eru enn að þroskast. Málið er nefnilega það að þegar Voffi minn var ungur, alveg frá 5-11mán þá uppgötvaði hann að ein vinkona mín var með svona, Lazergeisla/lazerbendil(rauður punktur)og hann varð óður hljóp á eftir þessu útúm allt og bara stoppaði ekki þarna á smátímabili. Ég fékk mér svona lazer líka og notaði óspart á voffa ef...

Heimsmet hunda! (3 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 1 mánuði
http://notendur.centrum.is/~pug/misc/records.html Ég bara varð að deila þessu með ykkur….

Svolitlar áhyggjur.... (1 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég er að velta fyrir mér einu… þannig er mál með vexti að íbúðin mín er ógeðslega köld, við erum að tala um það að allir ofnar eru bilaðir nema 1, og á köldum vetrarkvöldum er freeeekar kalt hérna inni, og voffinn minn sefur stundum á gólfinu og stundum uppí einsog gengur og gerist, og stundum þegar hann kemur uppí eftir að hafa legið á gólfinu þá er hann alveg kaldur, t.d. þegar ég er að strjúka honum um hálsinn og svona þá er húðin þar frekar köld eftir helv.. parketið. Hann er samt með...

Hund vantar heimili!!www.hundur.is (4 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 1 mánuði
Endilega kíkið inná www.hundur.is ef ykkur vantar félaga gott fólk! Margir hundar þar sem vantar ættleiðingu. Ég er nú bara að skrifa þetta því ég vorkenni greyjunum svo að hanga í búrum …. og þurfa jafnvel að sofna svefninum langa. :(

www.hundur.is - ef þig vantar félaga!!! (1 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Langaði bara að minna ykkur á þessa heimasíðu, hjá Félagi heimilislausra hunda. Ef ykkur langar að ættleiða hunda þá eru þarna nokkrir sem bíða eftir að komast á gott heimili!! Kíktu þangað núna og sjáðu krílin sem eru heimilislaus ;( ;)

HJÁLP makkarar (1 álit)

í Apple fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég er stödd hja systir minni sem a makka og hun er med vírus og ég á sjálf pc og er nýbúnað vírushreinsa mína og nú þarf ég að hjálpa henni að vírushreinsa hennar tölvu. Hvar fæ ég downloadad af netinu frítt trialware fyrir mac? Ég ætlaði að sækja Trend fyrir hana því það reyndist mér vel en ég gat ekki séð að það væri boðiið uppá það fyrir makkann. Einhver sem getur bent mér á síðum með frírri vírusvorn fyrir makka? Bíð hér við tölvuna eftir svari takk englar!!!

7mán hund vantar ættleiðingu!! (0 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hæ hó hundavinir! Vildi bara minna á síðuna www.hundur.is þar sem hundar eru skráðir sem vanta heimili, þannig að ef þið eruð að spá þá kíkjið þangað. Ég er búnað vera flækjast þarna tvisvar undanfarið og þarna er spaniel/collie-blendingur obboslega mikið krútt sem vantar heimili :( Hann er svooooooooo sætur að ef ég byggi ekki í blokk og með “bráðabirgðaleyfi” þá myndi ég hiklaust ættleiða hann.

Greinar/myndir að hverfa hjá fleirum?? (1 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Sendi um daginn sömu myndina inn þrisvar og ekki lét hún sjá sig. Ég tel að hún hafi ekki verið of stór og svo sendi ég inn grein fyrir helgi á Hunda og hún hefur heldur ekki sést. Hvað er í gangi? (grrrrrrrrrr)

HJÁLP! Ég eyddi SULFNBK.EXE.... ég er fífl! (13 álit)

í Netið fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég var á www.btv.is/virusupplysingar.htm og var að lesa þar grein um vírus en ég las ekki nógu vel ALLT sem stóð, svo ég óð bara einsog asni beint í leiðbeiningarnar… svo þegar ég var búin að searcha eftir sulfnbk.exe og eyða því einsog upplýsingarnar sögðu mér að gera (tæmdi recyclebin líka) þá loks las ég “ÞAÐ Á EKKI AÐ FARA EFTIR ÞESSUM UPPLÝSINGUM” ….. ég er svo fljótfær! Er þetta allt í lagi? Þarf ég ekki þennan fæl? Er ekki einhver miskunnsamur samverji þarna úti?? Ég fór að gera þetta...

Hundagangan - Er þetta Freckles? (2 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Þessi American C Spaniel hundur sem var í hugagöngunni, heitir hún Freckles?

Hvað tekur við eftir að maður tekur sitt eigið líf (1 álit)

í Vísindi fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það hafa verið einhverjar umræður hérna um hvað tekur við eftir dauðann, en hvað tekur við eftir að manneskja fremur sjálfsmorð? Fer hún á stað sem er einskonar biðstofa þar til “réttur” tími hennar kemur til að yfirgefa svæðið? Eða er hún svífandi hér um á meðal okkar lifenda? Eða er hún föst einhverstaðar? Gaman væri að fá umræðu um þetta og sjá hvað fólk hefur mismunandi kenningar um þetta. Ég sjálf hef ekki hugmynd um hvað ég á að halda ég er búnað vera að velta þessu fram og tilbaka en...

Playing Bridge is like having sex,... (1 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 3 mánuðum
…cause if you dont have a good partner, you better have a good hand
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok