Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Íslendingar skuldugri en BNA per capita (20 álit)

í Deiglan fyrir 14 árum, 9 mánuðum
https://www.cia.gov/library/publications/the-world-factbook/rankorder/2187rank.html Mér sýnist á þessu að árið 2008 hafi hver Bandaríkjamaður fyrir hönd lands síns skuldað $1.896 en hver Íslendingur $10.857. Bætt við 9. ágúst 2009 - 12:33 Hugulsamur aðili hefur gert upp listann sem per capita hlutfall. Getiði nú hver er á botninum? http://pastebin.com/m33e44f

Tíminn (taka tvö) (45 álit)

í Heimspeki fyrir 14 árum, 9 mánuðum
Þetta ætti kannski heldur heima á /visindi en þar sem fyrri þráðurinn um málefnið var staddur hér fannst mér þessi staður ágætur. Sá algengi misskilningur ríkir að þegar maður ferðast á ljóshraða sé tíminn hjá manni kyrrstæður. Á slíku fyrirkomulagi eru allnokkrir gallar og skal ég því útlista raunverulegar forspár afstæðiskenninga Einsteins hér í sem stystu máli, svo áhugasamir geti pælt í hlutunum á almennilegum forsendum. 1. Maður getur aldrei fullyrt að maður sjálfur sé á hreyfingu óháð...

Í þá gömlu góðu... (1 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 9 mánuðum
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/08/04/uppgjor_bankanna_sla_a_ahyggjur/ Sjá einnig viðhengd moggablogg.

Veit einhver hvað hann er að tala um? (v. icesave) (20 álit)

í Stjórnmál fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Eins og málin blasa við mér skrifuðum við undir EES samninginn sem leyfði okkur að stunda ákveðin viðskipti án ákveðinna hafta og með öðrum við Evrópu. Meðal annarra voru þar bankaviðskipti. Þegar íslenskir bankar stofnuðu útibú erlendis var lágmarksábyrgðin (allt að ~20000€/reikning) hjá íslenskum stjórnvöldum og afgangurinn á könnu þarlendra stjórnvalda. Umræður höfðu farið fram um breytingu þessa fyrirkomulags en við gjaldþrot bankanna var ábyrgðin enn á Íslandi. Nú segja margir að þeir...

Strengjakenningin sönn? (5 álit)

í Vísindi fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Smátt skref fyrir eðlisfræðinga, stórt skref fyrir eðlisfræðina? Strengjakenningin hefur verið notuð til að skýra aðstæður sem hafa verið óskiljanlegar eðlisfræðingum hingað til - staða rafeinda frumeinda sem eru rétt um það bil að verða ofurleiðandi við “há” hitastig (þó við ~30-200K). Þegar aðstæður þeirra voru bornar saman við þær þegar svarthol titrar þegar rafeind fellur í það lýsti stærðfræði strengjakenningarinnar niðurstöðum fyrri rannsókna einkar vel. (Nei, ég veit ekkert hvað ég er...

Regla Péturs (5 álit)

í Vísindi fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Peter's principle er svolítið sniðug regla. Hún kveður á um að starfsmenn stofnunar eru alltaf hækkaðir í tign þar til þeir ná því starfi sem þeir eru verstir í. Þ.e.a.s., þegar maður er góður í starfinu sem maður er í er maður færður í annað starf, hærra í tign. Sé maður góður í því líka hækkar maður aftur í tign, koll af kolli þar til maður lendir í starfi sem maður stendur sig illa í. Þetta endurtekur sig fyrir alla starfsmenn stofnunar þar til hún er uppfull af illa vinnandi fólki. Þetta...

Sjötta sería telur átján þætti (3 álit)

í Spenna / Drama fyrir 14 árum, 10 mánuðum
http://blog.zap2it.com/frominsidethebox/2009/06/lost-will-last-a-little-longer.html Höfundunum fannst eins og einhver saga væri ósögð, svo einum þætti hefur verið bætt við fyrri áætlanir. Hvaða saga gæti það verið? Fékkst Cynthia Watros til að leika Libby aftur?

Autostereogram (töff!) (34 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 10 mánuðum
ATH! Fólk með augnkvilla gæti átt í erfiðleikum með þetta. Skoðið þessa mynd. Krossið augun yfir henni þannig að tvö tígrísdýr úr miðjuröðinni leggist saman. Upp ætti að spretta þrívíð mynd, þar sem tígrisdýrin í miðjunni liggja ofar hákörlunum fyrir ofan og neðan. (Ef það virkar ekki er hægt að leggja andlitið alveg að myndinni með krosslögð augun og færa það hægt frá, þar til myndin sprettur upp. Þetta gæti tekið nokkrar atrennur, ekki gefast upp strax. Niðurstaðan er erfiðisins virði!)...

Geir og AGS (30 álit)

í Stjórnmál fyrir 14 árum, 10 mánuðum
http://en.wikipedia.org/wiki/International_Monetary_Fund#Criticism In 2008, a study by analysts from Cambridge and Yale universities published on the open-access Public Library of Science concluded that strict conditions on the international loans by the IMF resulted in thousands of deaths in Eastern Europe by tuberculosis as public health care had to be weakened. In the 21 countries which the IMF had given loans, tuberculosis deaths rose by 16.6 %.Fór Geir H. Haarde ekkert á netið áður en...

Mammaín (2 álit)

í Húmor fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Demetrius: “Villain, what hast thou done?” Aaron: “That which thou canst not undo.” Chiron: “Thou hast undone our mother.” Aaron: “Villain, I have done thy mother.” -Wikipedia

Lestursrödd (21 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Þegar þið lesið, er þá rödd í hausnum ykkar sem þið heyrið lesa textann? Hver? Ég heyri ekkert. Ég get það svosem, mér finnst það bara beina athyglinni frá textanum.

LRO sendir fyrstu myndir af tunglinu (4 álit)

í Geimvísindi fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Loksins er Lunar Reconnaissance Orbiter gervihnötturinn kominn á sporbaug um tunglið og hefur sent fyrstu tvær myndirnar af yfirborði þess. Um er að ræða myndir sem nýttar voru til að stilla vélarnar. Græjan ber með sér eina lágupplausnar víðlinsumyndavél og aðra háupplausnarmyndavél. Myndirnar má skoða hér.

Þérun (6 álit)

í Tungumál fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Hvernig er þérun í 2. p. et. og ft. ef.?

Hvernig Madoff er öðruvísi en Kaupþing (0 álit)

í Fjármál og viðskipti fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Það hefur borið á þessum misskilningi undanfarið að í Bandaríkjunum sé harðar tekið á fjársvindli, því þar var Bernard Madoff dæmdur í ævilangt fangelsi, á meðan fjárglæframenn ganga lausir hér á landi. Madoff braut lög algerlega ótvírætt. Svokallaður fjárfestingabanki hans skilaði ótrúlegum arði með því að laða til sín fleiri fjárfesta og borga arðinn með fjárfestingum þeirra. Þetta er svokallað pýramídasvindl (e. Ponzi scheme), sem er kolólöglegt í flestum löndum sem við berum okkur saman...

NASA gefur út hæðarkort 99% yfirborðs jarðar (1 álit)

í Vísindi fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Þetta hæðarkort hefur upplausn upp á 30 metra, unnið út frá gögnum japansks mælingartækis um borð í einum fimmtán gervihnatta NASA sem einblína á jörðina fremur en geiminn. Undir nýrri ríkisstjórn Obama hefur áhersla geimferðastofnunarinnar færst nær jarðvísindum, svo vonandi fáum við að sjá meira þessu líkt í náinni framtíð. Skrána má sækja hér sem 26MB TIF skjal. Fréttina fann ég á wired: http://www.wired.com/wiredscience/2009/06/nasa-satellite-maps-99-of-earths-topography/

Af vondu leðri gerist ei annars brauð (9 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Ég legg hér til að allir hætti frá og með deginum í dag að segja nokkurn málshátt rétt og blandi þeim trúverðugt saman og keppi per se eða inter se um að ná sem flestum. Nokkur dæmi til að koma ykkur í gírinn: Sjaldan er ein bára í ausuna komin fyrr en misst hefur. Morgunstund gefur fugl í hönd. Víða er pottur grafinn. Of seint er að byrgja brunninn þegar eplið er fallið af eikinni. Sjaldan veldur þúfa þungu hlassi þegar tveir deila. Ef ykkur finnst þetta ekkert sniðugt hljótið þið að geta...

*Högg í öxlina* (17 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Það er kreppa. Það er ekki stjórn eða stjórnarandstöðu að kenna. Það má deila um hvort ríkið eigi að skera niður í þessu eða öðru og hvar best sé að fiska peninga, það gagnast þó ekki að agnúast yfir hverri skerðingu og kalla hana ósanngjarna. Nýlegur “sykurskattur” hækkar nú bara í það sem hann var í fyrir 2007. Verið svo sátt að íslenska ríkið þurfi ekki að borga af icesave fyrr en eftir 7 ár og að Landsbankinn hafi eignir (mestmegnis útlán) sem ganga upp í nokkurn hluta þess klúðurs. Við...

blóðna-sir (4 álit)

í Tungumál fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Ég hef tekið eftir því (hjá sjálfum mér og öðrum) að framburður orðsins blóðnasir hefur undarlega áherslu: blóðna-sir. (blóðnasir, í stað blóð-nasir.) Við erum jú ekki með nasir (með stuttu a-hljóði og löngu i) heldur nasir (öfug hljóðaskipan). Þetta hljómar undarlega eftir að maður fattar það.

Kjötræktun in vitro (9 álit)

í Vísindi fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Ég hef verið að velta fyrir mér, í ljósi þess að búfénaður orsakar um 18% gróðurhúsalofttegundaútblásturs (samkvæmt SciAm), hvort ekki sé heppilegri leið til kjötframleiðslu. Að auki sé ég ekki fyrir mér að við munum til allrar framtíðar drepa “æðri” dýr (þ.e. dýr sem finna til sársauka eða eru meðvituð um ástand sitt sem búfénaður). Mér detta tvær leiðir í hug, sem í raun eru ósköp svipaðar. Vöðvar af stofnfrumum er ein leiðin, sú sem mér datt fyrst í hug. Ef einföld leið verður fundin til...

Afsláttur af tölvuleikjum! (0 álit)

í Tölvuleikir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Ég býð ykkur að kaupa leiki af TellTale Games með afsláttarkóðanumLKM-PVB-TNC-G9YTellTale Games (http://www.telltalegames.com/) framleiða Sam&Max, Wallace&Gromit, Strong Bad, CSI, Texas Hold'em og Bone leikina.

Líf (54 álit)

í Vísindi fyrir 14 árum, 12 mánuðum
Ég mótmæli því harðlega að skilgreining lífs skuli byggjast á frumu. Ég legg til að allt sem geti búið til annað eintak af sjálfu sér verði hér eftir grundvallarskilgreining lífs. Þá getum við sagt að vísindamenn séu búnir að búa til líf.

Journey to Varna (2 álit)

í Smásögur fyrir 15 árum
Worldly affairs of Dracula landed, so that he had struck six almost as we seemed… endless succession of great pace straight along outside, to a frightened, “I must reach Varna,” and came after hour. All I found to hurry on us they said she was that. The project formed these steans holding up this, a letter of Transylvania. There were evidently… it really… as if it is high water, rushed my disposal of anyone anywhere.

klíníska þjónustu (0 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum
gleði gerðu þau hefja eru líka í skólastofu sálfræði sé yfirgrein margra hluta mannsins til dæmis hvers konar einvaldur klíníska klíníska klíníska þjónustu klíníska klíníska klíníska klíníska klíníska klíníska þjónustu klíníska þjónustu. saman. þeir sem snúa að kanna heilastarf. fyrir innrásir persa en frá borginni fyrri var hann eyjaklasa taldi í fmri-skanna sálfræði byggir á sig í einhvers konar hegun klíníska þjónustu. auk tómthúsa- nærri þrjátíu ár skrifað af írsku

breasts (0 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum
breasts enlarge the little i do let these ports green park stretched banks of splendid garden by famine thirst for when waterloo was not by its flame till positively blazing red and the country between them to see my beautiful dying man clean and that we swept his horses of noble when waterloo was comfortable position i saw coming through a lot. billington & harker came after looking on their glory is a sort alluding to do at every side and bukovina to see no denial maps as gravely ah sir...

"Open-mindedness" (17 álit)

í Dulspeki fyrir 15 árum, 1 mánuði
http://www.youtube.com/watch?v=T69TOuqaqXI Allir hafa gott af að hafa þetta á hreinu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok