Jæja, gaman væri að vita hvaða hljómsveit verður fengin til að hita upp á þessum geggjuðu tónleikum með Muse.

Sjálfum finnst mér þetta erfitt val enda er margt gott að gerast í rokkheiminum á Íslandi þessa dagana. Nöfn eins og Maus, Singapore Sling, Botnleðja, 200.000 naglbítar og Mínus koma upp í hugann á manni. Þótt maður búist ekkert frekar við því þá vona ég að Singapore Sling spili, enda eru þeir að gera góða hluti í Bandaríkjunum og fyrsta platan þeirra er mögnuð. En þeir eru náttúrulega mjög ólíkir Muse og þetta er bara það sem ég vona. En hvað finnst ykkur?
Því meira sem maður lærir, því minna veit maður