Á sólríkum sumardegi
sigraðir þú okkur
eins og kaldur vindur
sem blæs af hafi

Við vorum óviðbúin
og vissum
að með komu þinni
hafði haustið heilsað