Enginn þarf að efast um það að Ingibjörg er metnaðarfullur stjórnmálamaður. Hún stefnir að því að verða forsætisráðherra og herma þannig eftir Davíði Oddssyni. Það er hjákátlegt að horfa á upp á viðbrögð Vinstri-grænna og Framsóknar svona þegar hún undirbýr þetta hástökk sitt inn í landsmálin. Auðvitað eru þeir svekktir. Auðvitað eru þeir fúlir. Þeir hafa verið sviknir. Þeir hafa aðstoðað Samfylkinguna í því að búa til framtíðarleiðtoga hennar. Össur ætti að senda þeim þakkarkort áður fylking hans jarðar Vinstri græna og Framsóknarflokkinn.