Áður en fjallstindar skáru og drápu, áður en síðasti blóðdropinn draup úr auganu alheimsins, glóandi gullmoli röðullinn gyllti ei glóir meir. Áður var fegurðin allsstaðar, gervöll og plöntu- og dýralíf blómstraði um allt. Allt var svo yndislegt, ilmur í loftinu og heimsljósið gaf okkur lífskraft og ljós. Áður hrundu fossar niður í ólgandi fljót, sem síðar meir kvísluðust hvert sína leið. Eldgömul eikartré fylgdust með dýrunum, sum dýrin leituðu skjóls hjá þeim. Allt þetta höfðum við, ef ekki...