Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

vitringur
vitringur Notandi frá fornöld 1.026 stig
Við erum alheimurinn, vaknaður til vitundar um sjálfan sig

Re: Sveppatínarar

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Það er persónulegt val að stíga upp í bifreið. Og hvernig skilgreinir þú ‘marga’? Ég man ekki eftir neinni umfjöllun um alvarlegan skaða sveppa á Íslandi þó svo að fjöldi fólks noti þá, enda vaxa þeir villtir á höfuðborgarsvæðinu. Alvarlegasta tilfellið sem ég man eftir er þegar Íslendingurinn í Hollandi hoppaði fram af annarri hæð og rústaði á sé fótunum.

Re: Þjóðfundur og stjórnarskrár breytingar

í Stjórnmál fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég viðurkenni einfaldlega þá steðreind að vilji þjóðarinnar velur ekki fólk á framboðslista flokkana.Sem þýðir að flokkakerfið er rót vandans. Ég sé ekki hvernig við lögum það eða samræmum það vilja þjóðarinnar með því að setja enn ólýðræðislegri reglur varðandi val á framboðslistum. Við ættum frekar að losa okkur við flokkakerfið og þar með ráðast á rót vandans.

Re: Reiðmennirnir fjórir

í Dulspeki fyrir 15 árum, 8 mánuðum
http://en.wikipedia.org/wiki/Four_Horsemen_of_the_Apocalypse Svo virðist sem það sé sá sami og fyrsti, conquest

Re: Gunnar og morðmálið

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Hvernig leitar maður að einhverju sem er ekki til?

Re: AA fundir...

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Trúlausir trúa ekki á æðra máttarvald, sama hvort þú kallar það guð, gardínu eða sól…

Re: AA fundir...

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég hef sömu skoðun á þeim og öllum öðrum sértrúarsöfnuðum. Auk þess hef ég ekki séð nein gögn sem benda til þess að AA virki í raun og veru.

Re: Jón Gnarr og klám

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Hvað með það þó þetta hafi verið grín? Hvað með ef honum var fúlasta alvara? Á hann að ljúga að fréttamönnum til þess að halda uppi falskri púritana ímynd af Íslendingum… því hingað til höfum við ekki verið þekkt fyrir hana :)

Re: Feministar

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
LIKE

Re: Feministar

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ef þú flippar tíkalli 10 sinnum, hverjar eru þá líkurnar á því að loðna/skjaldamerki komi akkurat 5 sinnum hvor? Líkindadreifingin sem hann notar hérna að ofan kallast binomial og er frekar einföld tölfræði

Re: Hafnarfjarðarninja

í Húmor fyrir 15 árum, 8 mánuðum
too late?

Re: Einkavæddir dómstólar.

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Um hvað ertu eiginlega að tala og hvernig á þetta við um mig? Það er ég sem er að gagnrýna núverandi ríkisfyrirkomulag en ekki að koma með mína eigin hugmynd. Þannig ég ætti eiginlega að segja… right back at ya!

Re: Einkavæddir dómstólar.

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég sagði það aldrei. Alþingismenn setja sjálfir flest allar þær reglur sem þeir og við hin þurfum að fylgja í landinu. Svo ef stór hluti Alþingismanna eru bindindismenn eru ágætar líkur á því að áfengi verði bannað sama hvort okkur hinum finnist það skynsamlegt eða ekki. Þetta eru 63 aðilar sem hafa gífurlegt vald yfir hinum 320.000 sem búa á eyjunni og mér finnst það skuggalegt.

Re: Gunnar og morðmálið

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Þú ert að fullyrða, sýnd þú okkur lögin. Lögreglan í BNA má t.d. ljúga að fólki og þar eru réttindi almennings gegn lögreglunni meiri en hérna heima.

Re: Gunnar og morðmálið

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég veit ekki hvort menn hafa rétt á því að þaga á Íslandi. Annars er alls ekkert erfitt að fangelsa hann á þeim forsendum að blóð er á skónum hans, þ.e. gæsluvarðhald :)

Re: Draga þarf aðildarumsókn að Evrópusambandi til baka.

í Stjórnmál fyrir 15 árum, 8 mánuðum
a) Seðlabankar og miðstýrð peningamálastefna er rót alls þess sem þú varst að nefna svo ég sé ekki hvernig erlendur seðlabanki getur verið betri en innlendur. En eins og ég sagði, þá er þetta líka eitthvað sem við getum gert einhliða… ef það væri vilji til þess. b) Þetta er líka eitthvað sem við getum gert einhliða… ef vilji er fyrir hendi. c) Þú gleymir því að þetta er tollabandalag og um leið og við förum í ESB erum við óhjákvæmilega að loka á umheiminn á móti. Við getum alveg stuðlað að...

Re: Versti pólítíski/hernaðarlegi leiðtoginn

í Deiglan fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Og Maó á toppnum ef maður lítur einungis á hversu mörg dauðsföll megi rekja til eins manns.

Re: Gunnar og morðmálið

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ef að blóð úr fórnarlambinu finnst á skónum þá er frekar erfitt að segja að maður tengist málinu ekki á nokkurn hátt :P

Re: Gott að borða

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
hvernig færðu það út?

Re: Gjald til þjóðkirkjunnar

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Þá er um að gera á skrá sig í eitthvað flipp, eins og búdda, baha'í eða ásatrú. Nú, eða stofna sitt eigið trúfélag og hirða peningana sjálfur :)

Re: Einkavæddir dómstólar.

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Sem sagt, dómarar eru ekki heilagir en umboðsmaður Alþingis er það? Dómsmál eru ekki það einföld að einhver hafi bara ‘brotið lögin’. Það er hins vegar oft sem þarf að túlka lögin og þá eru þessir aðilar líklegri til þess að dæma sér í hag.

Re: Einkavæddir dómstólar.

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Þeir geta ekki sett lög bara sjálfir?Nú? Hver setur þá lögin?

Re: Einkavæddir dómstólar.

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég var bara að benda á að Alþingismenn setja sjálfir þær reglur sem þeir þurfa að fylgja. Auk þess dæmir ríkið í sínum eigin málum, sem er frekar brenglað réttarkerfi. Ég veit vel að það eru til reglur sem eiga að ‘taka á’ svona vandamálum og þær eru til í bókunum. En þegar kemur að raunveruleikanum og klíkuskap getur raunveruleikinn verið allt annar… og er það oftast

Re: Einkavæddir dómstólar.

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Nei, þú gleymir því að áfrýjanir og dómsmeðferð er mjög dýr og tímafrek og það er tæpt að aðili vilji taka þá áhættu að áfrýja. Og hvað ef Umboðsmaður Alþingis kemst að sömu niðurstöðu? Hvað ef sá sem þú átt í deilum við er háttsettur aðili innan íslenskra stjórnmála og þekkir mjög líklegast alla þess aðila? Mér finnst frekar rangt að einhver aðili fái að dæma í eigin málum, sem er nákvæmlega það sem Ríkið gerir… dæmir í eigin málum.

Re: Gjald til þjóðkirkjunnar

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Það eru ekki forréttindi. Ég sé ekki hvers vegna ég ætti að borga gjald til trúfélags sem ég fæ enga þjónustu frá. Ef ég fæ enga þjónustu frá trúfélögum en þarf samt að borga trúfélagaskatt sem rennur í staðinn beint til ríkissjóðs þýðir það að ég sé í raun að borga hlutfallslega hærri skatt en allir aðrir: þ.e. ég þarf að borga hlutfallslega meira af mínum launum til að fá sömu grunnþjónustu og aðrir krefjast í samfélaginu. Þannig það er í raun verið að veita trúuðu fólki forréttindi og...

Re: Strætóofnar

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Það er ekki vetur… :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok