Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

vido
vido Notandi frá fornöld 300 stig
Áhugamál: Stjórnmál, Ljósmyndun, Box

Lögleiðing ólympíska hnefaleika á næstunni (5 álit)

í Box fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Samkvæmt heimasíður Alþingis er frumvarp um lögleiðingu ólýmpískra hnefaleika á dagskrá í dag og er það 40.mál á dagskrá. En ekki eru líkur á því að málið verði tekið fyrir í dag vegna umræðu um sölu Landsímans. Hér fyrir neðan er listi yfir þá þingmenn sem að greiddu atkvæði gegn frumvarpinu á síðasta þingi.Ég skora á alla að sena þeim tölvupóst og skora á þá að snúa við og greiða atkvæði með þessu máli Þingmenn á móti hnefaleikum Sex þingmenn Sjálfstæðisflokksins áttu þátt í að fella...

Opinn fundur um lögleiðingu ólympískra hnefaleika (1 álit)

í Box fyrir 23 árum, 2 mánuðum
LÖGLEIÐING HNEFALEIKA Á ÍSLANDI Stefnir, félag ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði heldur málefnafund um lögleiðingu ólympískra hnefaleika, fimmtudaginn 1.mars kl. 20:00 í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði, Strandgötu 29. Framsögumenn verða: Bubbi Mortens Gunnar Birgisson Katrín Fjeldsted Árni Steinar Jóhannsson Að lokinni framsögn verður opið fyrir spurningar úr sal.

Hættir Björn Bjarnason sem menntmálaráðerra (22 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Síðustu daga hefur verið umræða um það hvort að Björn Bjarna hættir sem menntmálaráðherra og taki slaginn í borginni og fer á lista sjálfstæðismanna í borginni. Ég tel að Björn eigi góðan möguleika á því að verða kosinn borgarstjóri þar sem að hann hefur staðið sig með prýði sem menntamálaráðherra. Að mínu mati er Björn sá maður sem að getur leyst Davíð að hólmi þegar hann hverfur til annara starfa. Ef að Björn myndi taka þá ákvörðun að gefa kost á sér þá tekur hann mikla áhættu með sinn...

Box á alþingi (3 álit)

í Box fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Á þriðjudaginn fór fram fyrsta umræða um lögleiðing ólympískra hnefaleika. Gaman er að sjá þungaviktamanninn Gunnar Birgirsson berjast með kjafti og klóm fyrir því að málið fari í gegn. Nú legg ég til að við sem að viljum hag hnefaleika sem mesta að við látum í okkur heyra. Sendum þessum sem að vilja banna okkar íþrótt bréf og látum þá heyra hvaða skoðun við höfum á málinu. Þetta hefst ekki nema að við berjumst.

Íslendingar í Víking til USA (3 álit)

í Box fyrir 23 árum, 3 mánuðum
í dag var það í fréttunum að einhverjir Íslendingar ætli að fara til USA að boxa og þannig mótmæla þeir þeim fáránlegu lögum sem að í gildi eru á Íslandi. Ég sé ekkert að því að þeir fari þarna út og boxi svo framanlega sem að þeir verði sér og landi okkar ekki að fífli. Það sem að ég veit um þessan hóp er það að Sigurjón nokkur ásamt fleirum séu að æfa þá í Hafnafirði. Það sem ég hef heyrt um Sigurjón er ekkert gott og hvað þá að hann geti eitthvað boxað. Svo verður bara að sjá hvernig...

Öryrkjar og Garðar Sverrisson (10 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Í nótt varð að lögum svokallað öryrkjafrumvarp þar sem að bætur öryrkja sem að eru tekjutengdir vegna maka hafa hækkar úr 18 þús kr í 43 þús kr. Þarna er umtalsverð hækkun í gangi sem að gæti hugsanlega verið hærri. Garðar Sverrisson formaður ÖBI hefur farið mikinn í þessu máli og talað stundum látið stór orð látinn falla og að mínu mati hefur hann ekki bætt stöðu öryrkja mikið. Ég tel að á næstunni þegar þegar nefnd sem að er að meta almannatryggingakerfið skilar sínu ályti þá mun staða...

Feiti markmaðurinn farinn frá Man Utd (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Mikið var ég ánægður að heyra það að feiti og lélegi markmaðurinn í Man Utd skildi fara. Ég sem United-fan skil ekki hvað var verið að gera með þetta Ástralska grei, hann gat ekki neitt. Ég vorkenni þeim hjá Chealse að taka við kvikyndinu. Það ætti ekki að vera auðveld fyrir Fjögurablaða Smáran að skora hjá honum á æfinugum

Boxið tekið fyrir á Alþingi (6 álit)

í Box fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Samkvæmt áræðanlegum heimildum þá verður Alþingi tekið fyrir á næstu vikum. Þegar af þvi verður verðum við sem að viljum lögleiða ólympískahnefaleika að taka höndum saman og ná þessu í gegn. Við getum það með eftirfarandi leiðum; 1.Senda þeim sem ekki greiddu atkvæði með frumvarpinu í síðusta þingi mail þar sem að skoðun okkar kemur í ljós. Og þá þurfa sem flestir að senda mail þannig að við getum haft einhver áhrif. 2.Skrifað greinar í Mbl, en passa þar að vera ekki með neitt skítkast úti í...

Lecester kaupir leikmann og Arna dettur út (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Í gær keypti Lecester nýjan sóknarmann frá Derby og þar með er staða Arnar Gunnlaugs orðin ansi slæm. Hann hefur átt við meisli að stríða og ekki getar sýnt hvað i honum býr (þó svo að ég efist um að það sé eitthvað mikið). Ég tel að ef að Arnar ætli að halda sinni stöðu á bekknum verði hann að ná að sýna hvað í honum býr þegar og ef hann fær tækifæri

Leiðtogi sjálfstæðismanna í Reykjavík (7 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Í DV í dag er birt skoðunarkönnun þar sem að spurt er hvern sjálfstæðismenn myndi velja sem næsta leiðtoga síns lista. Sigurvegari Inga Jóna Þórðardóttir sem að er núverandi leiðtogi vann með 61 atkvæði. Virðist hún njóta ágætis fylgis sem leiðtogi Sjálfstæðismanna, gaman er að fylgjast með því þegar Ínga Jóna hjólar af miklum krafti í Ingibjörgu borgarstjóra. En ég tel samt að hún eigi ekki möguleika á að verða leiðtogi þar sem að erfitt verður fyrir borgarsjóra að vera gift...

Léttvín og bjór í matvöruverslanir (15 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
4 þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt það fyrir Alþingi að færa léttvínssölu og bjórsölu í matvöruverslanir eins og tíðkast í öllum siðmenntuðum þjóðum. Þó svo að ég sé mikill bindindismaður þá tel ég að þetta sé skref í rétta átt.

Davíð á afmæli í dag!!! (12 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Einn merkast stjórnmálamaður aldarinnar á afmæli í dag. Ef skoðaður er ferill Davíðs þá hefur hann náð frábærum árangri bæði sem forsætisráðherra og borgarstjóri. Til hamingju Davíð

Ný sköðunarkönnun (10 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Í dag var kynnt ný sköðunarkönnun þar sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur misst meirihluta sinn. Þessi könnun er gerð þegar stjórnarandstaðan er í ham vegna öryrkjadóms og allur fjölmiðill gleypir það sem þeir segja. Ég vill meina það að stjórning hafa misst eitthvað fylgi en ekkei neitt nálagt því sem að kemur fram hjá DV. Hvernig yrði niðurstaðan ef spurt yrði helgina eftir verslunarmannahelgi hverjir hefðu fengið sér í glas um þá merku helgi. Niðurstaðan: 90%...

Stjórnmálamaður aldarinnar (11 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hérna er smá listi yfir þá menn sem að hafa skarað framúr sem stjórnmálamenn aldarinnar í þeim flokkum sem þeir hafa starfað. Ég mun telja hérna upp nokkur nöfn sem að mér finnst hafa skarað framúr í sínu liði. Endilega segðið mér síðan hvað ykkur finnst. Auðvitað eru þarna einhverjir sem ég hef gleymt eða vildi ekki setja á listan. Hægri menn og konur: Jón Þorláksson Ólafur Thors Davíð Oddsson Bjarni Benediktsson Auður Auðunsdóttir Gunnar Thoroddsen Þorsteinn Pálsson Sigurvegar á hægri...

Heiðurslaun listamanna (25 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Á síðustu dögum Alþingis var 10 listamönnum bætt í þann hóp listamanna sem þiggja heiðurslaun frá Alþingi. Á einu ári fær hver listamaður um 1,5 milljón frá ríkini. Ekki veit ég í heildina hvað þessi listi er langur en með þessum tíu þá er summan annsi góð til lengdar. Ekki ætla ég að fara að dæma það hverjir eiga skilið að fá þessi heiðurslaun, en maður sem er 55-60.ára finnst mér ekki eiga skilið að fá þessi laun, þó svo að listamaðurinn hafi gert einhverja stórahluti. Þetta er einn af...

Sameining bankanna (8 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Er rétt af Samkeppnisráði að stöðva sameiningu ríkisbankana? Ég er á því að ríkið eigi EKKI að vera í einhverjum bankabissnes og þess vegna eiga þeir að einkavæða bankana og láta markaðin ákveða hvort að það sé rétt að sameina þá eða ekki.

Framtíð landsliðsins (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Við val á leikmönnum sem að Atli tekur með sér til Indlands þá eru í upphaflega hópnum 7 KR-ingar. Það er allt í lagi að velja nokkra í sama liðinu en hálft liðið og svo Einar Þór Daníels af varamannabekknum hjá KR. Eins með Sigurvin Ólafsson eins illa og hann spilaði í fyrra þó á hann ekki skilið að vera þarna inni.

Herstöðvarandstæðingar (21 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Fámennur hópur manna og kvenna hafa barist í mörg ár fyrir því að varnarlið Bandarískahersins fari af landi voru. Þessi barátta á sér langa og leiðinlega sögu og virðast menn seinnt þreyttir á að berjast fyrir heimsku sinni. Hvað er það sem að við höfum fengið frá Varnarliðinu: 1:Gjaldeyristekjur af veru þeirra árið 1995 voru 9.061.800.000 kr. 2:Árið 1998 höfðu 852 Íslendingar atvinnu af veru þeirra hér. 3:Þyrlusveitir þeirra hafa oftar en einu sinni komið sjómönnum okkar til aðstoðar og án...

www.frelsi.is (14 álit)

í Box fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Á vef Heimdallar félagi ungra sjálfstæðismanna má sjá óska verkefnalista Heimdallar og á þeim lista er lögleiðing Ólympíska hnefaleika.

Ungir sjálfstæðismenn og box (12 álit)

í Box fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins lögðu ungir sjálfstæðismenn það til við landsfundinn að hann skoraði á ríkistjórnina að afletta banni við ólympískum hnefaleikum. OG fór það í gegn. Málið var tekið fyrir á síðasta þingi og féll það á einu atkvæði, málið verður lagt fyrir aftur á þessu þingi sem var að hefjast núna. Og vonandi verður það samþykkt. Stjórn SUS hefur ályktað um málið að það skuli samþykkt og munu ungur sjálfstæðismenn berjast fyrir lögleiðingu ólympískrahnefaleika fram í rauðan
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok