í dag var það í fréttunum að einhverjir Íslendingar ætli að fara til USA að boxa og þannig mótmæla þeir þeim fáránlegu lögum sem að í gildi eru á Íslandi.
Ég sé ekkert að því að þeir fari þarna út og boxi svo framanlega sem að þeir verði sér og landi okkar ekki að fífli. Það sem að ég veit um þessan hóp er það að Sigurjón nokkur ásamt fleirum séu að æfa þá í Hafnafirði. Það sem ég hef heyrt um Sigurjón er ekkert gott og hvað þá að hann geti eitthvað boxað.
Svo verður bara að sjá hvernig gengur úti og vonandi skemmir þetta ekki fyrir okkur með frumvarpið sem að liggur fyrir Alþingi.