Ég held það muni aldrei virka að hringja í hana si svona, vegna þess að ef henni finnst ekki í lagi að tala við ókunnuga menn í gegnum síma, og hún kemst að því hver þú ert, þá held ég að það verði út um þetta. Reyndu frekar fyrst að kynnast henni, sem vinur, sýndu henni þína góðu hlið, hringdu nóg í hana, og svo einn daginn, þegar þér finnst hún vera farin að sýna áhuga, láttu hana þá vera, því ef þú sýnir henni of mikinn áhuga þá einfaldlega fer hún að athuga hversu langt hún getur gengið...