Það er alveg ömurlegt hvernig stöð 2 hefur farið með Simpson gagnvart manni eins og mér. Ekki nóg með það að þeir stálu honum frá RÚV og þar með úr mínu lífi heldur hafa þeir einnig ákveðið að troða inn í hann auglýsingar. Ég hef lagt líf mitt í lima við það eitt að reyna að sjá þessa einhverju bestu þætti allra tíma á stöð 2 og þetta er það sem ég þarf að þola. Auglýsingar í Simpson. Ég vinn með skóla eingöngu til að geta borgað stöð 2. Svona framkoma jaðrar á við helgispjöll. Ég vona að stöð 2 sjái sóman sinn í því að láta áskriftagjald okkar nægja í framtíðinni. Það er nú nógu andskoti hátt.