Í tilefni nýs árs kynnir Counter-Strike.is í samvinnu við Íslandssíma og Tölvudreifingu nýja netdeild í Counter-Strike og mót. Netdeildin mun hefjast upp úr miðjum janúar en skráning er nú þegar hafin. Counter-Strike.is kemur til með að bjóða upp á netþjóna til útláns sem einnig verða notaðir í netdeildinni. Endanlegar reglur verða settar upp innan skamms, en við hvetjum öll íslensk klön til þess að taka þátt.

Fyrsta mót Counter-Strike.is verður síðan haldið í byrjun febrúar og mun skráning fyrir það hefjast seinni hluta janúar. Stefnt er að því að halda síðan mót með reglulegu millibili út árið.

og nú er bara að skella sér á www.counter-strike.is og skrá sig í deildina :)

[.Hate.]Memnoch