Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: FS- X og tölva ??

í Flug fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já allt kostar þetta aurinn. Spurning hvort maður fái sér ekki tvo örgjafa á móðurmorðið, þá er nóg plássið fyrir minniskortin :) En allt verður þetta að passa saman svo vinslan sé eins og til var sáð.

Re: ATR 72-500 FMC

í Flug fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hér er góð síða með kort af þúsundum flugvalla : http://www.fscharts.com/

Re: Flughræðslan heilsar

í Flug fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þessi smáatrið eins og þú kallar þau, hafa hjálpað mörgum sem ég þekki og opnað augu þeirra fyrir því að flugið og allir þeir kraftar sem áhrif hafa á vænginn, eru í raun ekki svo agalegt þegar upp er staðið og orðið rólegri fyrir bragðið þegar skilningurinn á þessarri eðlisfræði er ljós. Þá veit fólk hvað það er sem gerist og ferðin verður ánægjulegri þaegar fólk þarf ekki að óttast það sem það þekkir ekki. Kveðja

Re: Flughræðslan heilsar

í Flug fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Sæll dunalana. Þetta er ekki óalgengt vandamál, flughræðslan. Ýmsar orsakir liggja þar að baki, innilokun, veður hræðsla og læti í ókyrrð, ótti við vélarbilun og hrap. Allt eru þetta eðlileg viðbrögð hjá fólki sem þekkir ekki til flugsins og skilur ekki hvernig 20-200 tonna ferlíki fer að því að haldast á lofti. Flugmenn sem fljúga þessum vélum vilja komast heim til sinna fjölskyldna og ef einnhver hætta væri í flugi, þá myndur þeir augljóslega velja sér annan starfsvettvang. Ef þú lítur á...

Re: Flughræðslan heilsar

í Flug fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Sæl dunalana. Þetta er ekki óalgengt vandamál, flughræðslan. Ýmsar orsakir liggja þar að baki, innilokun, veður hræðsla og læti í ókyrrð, ótti við vélarbilun og hrap. Allt eru þetta eðlileg viðbrögð hjá fólki sem þekkir ekki til flugsins og skilur ekki hvernig 20-200 tonna ferlíki fer að því að haldast á lofti. Flugmenn sem fljúga þessum vélum vilja komast heim til sinna fjölskyldna og ef einnhver hætta væri í flugi, þá myndur þeir augljóslega velja sér annan starfsvettvang. Ef þú lítur á...

Re: Icelander ekkki með nógu góða þjónustu

í Flug fyrir 20 árum, 1 mánuði
Gefum krakkanum smá séns, honum er mikið niðri fyrir og þetta skilst nú það sem lagt er fram. Sem er einfaldlega það að Icelandair er frámunalega leiðinlegt fyrirtæki. Hættum að fljúga með því, gerum Iceland Express að flugfélagi sem við getum verið stolt af. Eflum það, þá lækka þeir hjá icelandair kannski fargjöldin. Þeir hafa haldið þjóðinni í axlarböndum hér áður fyrr á árum og eru enn að. Hverjir eru það sem halda því á lofti, jú við farþegar.

Re: Andstæðingasaga II : Supermarine Spitfire

í Flug fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Góð grein hjá þér. Hvet þig til að halda áfram og fjalla um fleiri tegundir frá þessum tíma, og af nógu er að taka. Amerísku vélarnar t.d og margar aðrar.

Re: Fyrsta paintið hjá stráknum :)

í Flug fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þetta er bara snild!! Frábært hjá þér.

Re: Flugkort fyrir FS 2004

í Flug fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þakka góð svör.

Re: Fs2004!

í Flug fyrir 20 árum, 3 mánuðum
DC-3 vélin er flott og gaman er að nálgast flugvöll í myrkri og rigningu. Það er erfitt að taxa DC-3 á braut, enn þó ekki alveg ómögulegt. Það er dálítil þolinmæðisverk enn F11 og F12 nota ég til þess að bremsa hægri og vinstri hjólum og þannig get ég stjórnað vélinni um brautina.

Re: Flughræðsla

í Flug fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Góðan daginn, Flughræðsla er ekki óalgengt hjá fólki og kemur ýmislegt þar við sögu. Ótti af ýmsum toga s.s innilokunarkend, að geta ekki haft áhrif á aðstæður, ótti um að eitthvað fari úrskeiðis og hræðsla við hin ýmsu hljóð í vélini. Flug er ótrúlega þægilegur ferðamáti. Það er kannski auðvelt fyrir mig að halda slíku framm, þar sem ég er nánast uppalinn á flugvellinum og var hann mitt annað heimili hér forðum :) en vissulega skil ég ótta þinn við að fljúga. Fælni er óþægileg og hún er til...

Re: Nýr Flugvöllur og flugvél

í Flug fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Fallegar flugvélar og skemmtilegt umhverfi, frábært eins og þér er lagið :)

Re: Er að testa að gera edits með AE " screenshots"

í Flug fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ótrúlega fallegar myndir af vélinni og svo spyr maður sig, hvar eru mörkin?

Re: vandamál

í Flug fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Takk fyrir orrinata já það hefur reynst mjög erfitt að halda taildragger vélum á réttri stefnu í flugtaki og lendingu, tala nú ekki um að taxa þeim milli svæða. En hefur þú hugmynd hvar maður nær í mælaborð t.d F 50 B 757 og fl. Er eitthvað mál að downloda þessu, eða þarf einhverja þekkingu til að raða öllu þessu saman. Einn lítið inn í tölvumálum, kveðja Trimm

Re: Allt sem að þú þarft að vita um FS9

í Flug fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Góð grein hjá þér Kauffman og margt forvitnilegt að sjá þarna. Geri ráð fyrir að hægt sé að downloada hinum ýmsu stjórnklefum úr mismunandi flugvélum ? Takk fyrir.

Re: Á ég að taka saman flesta línka sem eru þarna úti ?

í Flug fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Það væri frábært ef þú nenntir því. Alltaf gott að sjá eitthvað nýtt. Gott framtak hjá þér, ég fylgist spenntur með. Kveðja.

Re: Hvað kostar það að skoða Esjuna í klukkutíma?

í Flug fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Tek undir með Jerry Lee að menn eru harðorðir við fólk sem koma með greinar eða álit hérna inn. Strákurinn er aðeins að velta fyrir sér hvað það er dýrt að fljúga og mér finnst alveg óþarfi að hreyta skít í fólk sem kemur með álit hér inn. Mér getur hver sem komið með álit og mér finnst lágmarks kurteisi að virða það sem aðrir hafa framm að setja.

Re: Að dissa 12 ára einstakling?

í Flug fyrir 21 árum, 8 mánuðum

Re: Að dissa 12 ára einstakling?

í Flug fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Rolls, þetta er góð grein hjá þér og mikið er mér létt að sjá að þarna er einn flugáhugamaður með hjartað á réttum stað. Mér hefur fundist að flestir áhuga menn um flug séu í stanslausri ókyrrð, með óþægilegar athugasemdir gagnvart öðrum sem eru að tjá hug sinn hér. Athugið það áhugamenn um flug. Þetta er einfaldlega ekki “cool” að vera að tæta aðra niður, takið það til ykkar, þá komist þið úr ókyrðinni og verðið glaðir og ánægðir. Kveðja trim

Re: Rétt eða Röng fyrir hann?

í Rómantík fyrir 22 árum
Það er nú einu sinni þannig að engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Kanski er best að drengurinn taki af skarið, þar sem honum líður ekki vel með stúlkuni og segi henni að nú sé komið að leiðarlokum í þeirra samskiftum. Það má vel vera að stúlkan sjái þegar á hólminn er komið, að hún er að glata sambandinu við hann og þá getur meira verið að hún meti upp á nýtt sambandið. Ef engar tilfiningar vakna við það hjá stúlkuni, þá er best fyrir hann að slíta sambandinu, það er öllum til...

Re: Þarf ykkar álit en engin skítköst!

í Dulspeki fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hæ. Það er sárt að missa ættingja, foreldra eða afa og ömmu. Þar sem þér hefur þótt vænt um hana og ykkar á milli hefur verið órjúfanlegur strengur sem er erfitt að rjúfa er ná komin fellur frá. Oft verðum við að sætta okkur við staðreyndir og fyrir þig er sú staðreynd að amma þín er komin á annað svið. Það er eðlilegt að syrgja þann sem farin er og síðan verður lífið að halda áfram, bæði fyrir þig og ömmu þína. Þú vilt að ömmu þinni líði vel og þó þú hættir að syrgja hana er ekki þar með...

Re: Exosist!

í Dulspeki fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það er svo margt í kringum okkur sem við ekki skiljum. Ég ættla ekki að legja dóm á þessa frásögn, ég var ekki á staðnum og því síður þið hin, en ég veit hins vegar að það er ýmislegt til allt í kringum okkur og ég hef sjálfur persónulega reynslu af slíku, og sumt af því er ekki viðkvæmar sálir. Við verðum að átta okkur á því að ef við köstum steini í vatn þá myndast gárur, svona ef ég tala í myndmáli. Að sama skapi ef við sendum hugsanir frá okkur, þá fara þær lengra en okkur grunar, ég...

Re: Upplifun

í Dulspeki fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Sæll gosli. Þú skalt ekki hafa miklar áhyggjur af þessu. Ég veit að svona reynsla er erfið og að sjálfsögðu verður maður hálf skelkaður. þú talar um kulda inní herberginu og ofninn á fullu. Þarna hefur trúlega einhver komið til þín með eitthvað sem þú skilur betur síðar. Haltu áfram að biðja bænir, þær vernda okkur og þú getur farið framm á það í bænum þínum að svona endurtaki sig ekki. Hafðu það gott og lifðu heill. trim.

Re: Dauðinn!!

í Dulspeki fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það er sannarlega léttir að vita að það vakir einhver yfir okkur og það er ekki allt búið er við förum héðan. Finst þér það ekki hugun. Kveðja. trim

Re: Hvað gerist eftir dauðann?

í Dulspeki fyrir 22 árum, 8 mánuðum
ósköp áttu bágt tran, þú verður hissa þegar þar að kemur!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok