Halló!
Sko mér er allveg sama hvort að þið viljið trúa mér eða ekki. En ég ætla að segja ykkur smá lífreynslu sem að ég lenti einu sinni í.
Sko ég og vinkona mína ákváðum einu sinni á vetrarkvöldi að skulta vinkonum hennar upp í sumarbústað. Við ætluðum bara rétt að kíkja og fara svo aftur. Ég þekti engan þarna og leið ekkert of vel með þessu fólki. Það voru allir blindfullir nema ég og vinkona mín og ég sat bara svona ein og spjallaði bara aðeins við fólkið ekkert mikið.
Svo datt okkur stelpunum í hug að fara í næsta bæ á bar sem var þar og fara bara að djamma og við vorum akkurat fimm og ein stelpan ætlaði bara að spyrja kærastan sinn hvort að hún mætti koma með okkur. Þau fóru saman inn á klósett ásamt tvem öðrum stelpum og voru eithvað að rökræða og svo fara þau bara öll að vera geggjað óörugg og þessi óþægilega tilfinning kom inn í sumarbústaðinn. Eftir svona fimm mínútur þá koma þau út af klósettinu með eina stelpuna í fanginu og segja okkur að hringja á sjúkrabíl. Hún var allveg hvít í framan og ég varð sjúklega hrædd. Ég var allveg viss um að hún hefði tekið inn of stórann skamt af dópi eða eithvað. En svo öskrar kærastinn hennar á okkur og segir okkur að við megum ALLS ekki hringja á sjúkrabíl og þau fara með hana inn í herbergi og loka.
Þá fer þetta ógeð sko að ske. Hurðin er alltaf að opnast og við sjáum að stelpan sem að leit út fyrir að vera dópuð var staðin upp og andlitið á henni varð svona afmindað. Þetta gekk doldin tíma að krakkarnir voru alltaf að loka hurðini en alltaf opnaðist hún. Svo kemur ein stelpan út og biður okkur að finna biblíu. Biblían finnst og hún fer með hana inn og við sjáum að þau liggja þrjú ofan á stelpuni þegar hún opnar hurðina. Ég og vinkonu minni er ekki allveg farið að standa á sama og vorum að spá í að fara út í bíl og bíða þar. Þegar við vorum að tala um að fara út í bíl þá byrjar húsið geggjað að hristast og við heirum bara ógeðslegar raddir í eithverjum manni og það er verið að öskra eithver djöfla orð og eithvað. Hurðin á herberginu opnast og krakkarnir standa öll í horninu á herberginu og stelpan sem er andsetin sveif yfir þeim. Það fillti mælinn og við fórum út. Húsið var sko ennþá að hristast og þegar við komum út var jörðin kjur þar og við sáum þá allveg að það var ekki jarðskjálfti.
Við rukum út í bíl allveg á taugum og festum bílin í snjónum og svona.
Þetta var held ég versta upplifun sem að ég hef á æfi minni upplifað vegna þess að þetta var allveg eins og í Exosist. Myndini sko.!
Ég hef sagt fólki frá þessu og allir segja mig vera að ljúga þessu. En mér er allveg sama hvað fólk heldur. Við sáum þetta og vorum MJÖG hræddar.
Við vorkendum stelpuni geggjað fyrst en svo er ég hætt að vorkenna henni núna vegna þess að hún hefur verið að krukla við galdra og nornadæmi þannig að hún var bara að kalla þetta yfir sig. Þetta var sko ekki í fyrsta skipti sem að þetta kom fyrir hana.
Endilega segið mér ef að þið hafið lent í eithverju svipuðu og ykkar skoðun á þessu.!
smælaðu framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig.