Varðandi Myrka, þá eru fyrstu tónleikar hjá hljómsveitum oftast vafasamir. Panil, vor ágætir í fyrstu tveim lögunum þar til ég tók eftir að öll lögin voru eins (sama keyrslurokkið, sama formúlan), vantar fjölbreytni að ég held. Niðhöggur, voru harðir, ekki beint minn bolli af tei þannig að nóg um það. Isidor, ekki bestu tónleikar þeirra, nýja lagið Rönkenkona (að ég held) var skemmtilegt. Postrokksveitin sem ég man ekki hvað heitir, tók eitt lag, eitt 25 mín lag, full langt fyrir minn smekk...