Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tillumta
tillumta Notandi frá fornöld 40 ára kvenmaður
348 stig
-Það er snákur í stígvélinu mínu

miðlar (14 álit)

í Dulspeki fyrir 18 árum, 9 mánuðum
hæhæ, ég er nú ekki mikið búin að vera á þessu áhugamáli en hef alltaf haft áhuga á draugum og öndum og þannig. Mig langar rosalega að fara til miðils en ég er rosalega hrædd um að lenda á einhverjum fúskara. Hafiði einhverja reynslu af miðlum og vitað kannski hvar er hægt að nálgast þá?

leikir í DS (8 álit)

í Leikjatölvur fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Er það bara ég eða eða leikjaúrvalið í ds alveg hræðilegt? mér finnst eins og nintendo hafi verið of fljótir á sér að gefa tölvuna út á meðan svona fáir góðir leikir eru komnir. Ég keypti mér mario og urbz en langar ekkert brjálæðislega í hina leikina sem eru komnir, kannski wario en samt það lítið að ég er ekki búin að kaupa hann. Endilega látið mig vita ef ég er að missa ef einhverjum leik sem er alveg möst að eiga.

Kæra dagbók (6 álit)

í Húmor fyrir 19 árum
Jæja kæra dagbók, ég er byrjaður í ræktinni. Ég fór í fyrsta sinn í dag. Þegar ég var búinn í sturtunni hringdi GSM síminn. Ég svaraði símanum. “Halló” “Hæ, ástin mín þetta er ég. Ertu enn í ræktinni.” “Já ég var að koma úr sturtunni.” “Allt í lagi, ég ætla ekki að trufla þig lengi. Ég er niðri í bæ. Mig langaði bara að spyrja þig hvort ég mætti kaupa pelsinn sem ég sýndi þér um daginn. Hann kostar ekki nema 450.000,-” “Jæja ástin mín, fyrst þér líkar hann svona vel skaltu bara kaupa hann”...

Nintendo DS pottþétt region free?? (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 1 mánuði
Er hún ekki pottþétt region free?? nenni ekki að fara að kaupa einhverja leiki á netinu ef þeir virka svo ekki.

Hefur einhver præofað Donkey Konga? (4 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hefur einhver prófað Donkey Konga? Var að kaupa mér hann + auka bongós á amazon, hafði fengið alveg gjörsamlega nóg af vinunum sem eiga ps2 og spila Singstar og Eye toy í öllum partýum. Kominn tími til að sýna hvað GC hefur upp á að bjóða í partý leikjum

Donkey Konga!!! (2 álit)

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hefur einhver prófað Donkey Konga? Var að kaupa mér hann + auka bongós á amazon, hafði fengið alveg gjörsamlega nóg af vinunum sem eiga ps2 og spila Singstar og Eye toy í öllum partýum. Kominn tími til að sýna hvað GC hefur upp á að bjóða í partý leikjum

Vadd þe fokk is góing on? (3 álit)

í Sápur fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Sjittur, hva er í gangi núna?? Hvað var að Jack í dag, af hverju var hann eikvað ælandi í skólanum og hvað átti mamma hans að gera?? Var sko að læra fyrir próf og sá bara einhverjar glettur úr þættinum. Svo var bróðir minn að segja að Taj væri hommi. Hvað er í gangi?? Það verða einhverjir að skrifa reglulega svo mar nái að fylgjast með :(

Orðabók (6 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hvernig er það, þarf ekki að búa til Harry Potter ensk/íslenska orðabók? Ég las t.d. fyrstu bókina á íslensku en hinar fjórar á ensku og ég á í dottlum erfiðleikum með að tala við fólk sem las þær allar á íslensku, ég var að skrifa grein og það var tvennt sem ég vissi ekki hvað var á ísl. og það getur alveg eyðilagt fyrir fólki. Ég er allavegana tilbúin að reyna að búa til orðabók ef einhver er tilbúin að hjálpa mér með íslensku orðin

The Order of the Phoenix, nokkur atriði sem bögguðu mig. (7 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég var að klára the Order of the Phoenix og í endann var ég ekki alveg sátt við nokkur atriði, ef þið eruð sammála eða ósammála eða vitið eitthvað meira en ég endilega látið heyra í ykkur, ekkert kjaftæði samt. *Lét JK Ron og Hermione verða prefects(veit ekkert hvað það er á ísl.) bara til að Harry liði enn verr heldur en áður? *Ætlar Percy ekkert að sættast við fjölskylduna? Finnst svolítið skrítið að hún hafi geymt það því venjulega bindur JK enda á allt í lok bókar. *Hvað var það...

Dawson's Creek (3 álit)

í Sápur fyrir 20 árum
Ég fylgdist einu sinni eins og brjálæðingur með þessum þáttum, en þegar þau fluttu öll burt úr Capeside fannst mér þeir ekki skemmtilegir lengur og hætti að horfa (sá einn og einn þátt). En mig langar samt að vita hvernig þetta endaði allt saman, er einhver til í að segja mér það? :)

Diljá

freeloader (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 1 mánuði
í fyrra var ég að spá í að kaupa mér leik frá USA og ætlaði að nota hann með freeloadernum sem ég keypti á sínum tíma með animal crossing. þá var mér sagt að hann virkaði ekki fyrir nýja leiki, nintendo væru búnir að koma í veg fyrir notkun hans. Er þetta satt, virkar hann ekki fyrir nýja leiki?

Diljá

Ofnæmi :( (13 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Sælir hundahugarar. Þar sem þið virðist kunna ráð við næstum öllu ætla ég að biðja ykkur um ráð og um leið að þakka ykkur fyrir lifandi áhugamál og skemmtilegar umræður. Ég á 7 ára hund sem heitir Runni og er litla barnið í fjölskyldunni en nú er komið upp vandamál með hann. Mamma mín er búin að vera slæm af exemi síðan ég man eftir mér en nú síðasta árið hefur það ágerst mjög mikið og hún upplifir margar svefnausar nætur útaf þessu. Hún hefur farið í allskonar test og ofnæmispróf og búin að...

Er ekki allt í standi hjá Flugmálastjórn?!? (14 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég er nýkomin úr ppl prófum hjá Flugmálastjórn og mikið ofsalega eru skrítin vinnubrögð þar á bæ, maður hafði nú heyrt frá kennurunum að þau væru varasöm en ég bjóst nú við að þetta væru ýkjur hjá þeim, það kom sko aldeilis ekki á daginn. Fyrstu kynni mín af Flugmálastjórn voru þegar ég skráði mig í bóklegu prófin hjá þeim, við fengum frest því prófin hjá flugskólanum voru svo seint. Þeim fannst alveg greinilega að þau væru að gera okkur alveg rosalegan greiða með því að lengja...

Finding Nemo (1 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Sá Finding Nemo leik í BT bæði í GC og PS2. Þeir hljóta að vera eins, var alveg eins aftan á þeim allavegana. Hefur einhver prófað hann? Sá að hann var númer 3 fyrir PS2 leiki, veit samt ekkert hvort þeir flokka þetta eftir mest seldu leikjunum eða hvað. Ég veit að þetta er krakkaleikur en ég hef mjög gaman að þeim. :Þ

Diljá

Mario Kart Double Dash (6 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hvernig líst ykkur á gripinn???

Diljá

Nýi Stíllinn Keisarans (2000) (21 álit)

í Teiknimyndir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
The Emperor's New Groove er byggð á sögunni um Nýju fötin keisarans sem flest allir ættu að þekkja og er ein mesta snilldarmynd sem snillingarnir hjá Disney hafa getið af sér. Húmorinn í henni er svo kaldhæðinn og svartur að ég held að hún höfði frekar til eldri kynslóðarinnar en þeirrar yngri. Sagan fjallar um Kuzco sem er keisari í Mið-Ameríku og hugsar ekki um neitt nema sjálfan sig og það eina sem skiptir máli er hann sjálfur. Yzma sem er ráðgjafi Kuzcos er farin að reyna að stjórna...

Game cube + aukahlutir (4 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Tilboð óskast í Game Cube með 2 fjarstýringum. einnig til: gba port, gba/gc snúru, Memory card 251 Memory card einnig nokkrir leikir: The Sims Super Mario Sunshine Animal Crossing + Free loader + Memory card Super Smash Bros Melee Bomberman Generation James Bond: Agent Under Fire Sonic Adventure 2 Battle Nickelodeon Party Blast Crash Bandicot: The Wrath of Cortex allt saman er þetta í góðu standi og bæklingar fylgja með öllum leikjum. Tilboð annað hvort í allan pakkann eða hluta óskast.

Diljá

kindin?? (3 álit)

í Netið fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Fyrir nokkrum árum rakst ég á það sem ég held að hafi verið screensaver en getur líka hafa verið í gangi á meðan tölvan var í notkun. Þetta var lítil kind sem hljóp um skjáinn. Ef einhver man eftir að hafa séð þetta eða rekist á þetta nýlega myndi ég gjarna vilja fá upplýsingar um hvar svonalagað er að finna á veraldarvefnum. og janvel hvað þetta er ef þetta er ekki screensaver. Með fyrirfram þökk. Diljá

Diljá

búðir á netinu (3 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 6 mánuðum
sæl verið þið. ég er að spá í að fara að drífa mig í að kaupa mér headset. vitiði um einhverjar góðar búðir á netinu? þura ekki að senda til evrópu, hef samönd í usa. :) einhver comment um hvað er besta tegundin??

Diljá

nintendovip.com (9 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 10 mánuðum
er einhver hérna í þessum nintendo vip klúbbi. Fékk einhvern miða með einhverju pin code þegar ég keypti mér GB player og skráði það inn á nintendovip.com. Þar fékk ég 600 stjörnur fyrir að skrá mig og þær virka sem gjaldmiðill á alls konar dót t.d. screensaver, wallpaper og fullt af dóti sem þú getur prentað út. ef einhver kann eitthvað á þetta mætti sá hinn sami alveg upplýsa mig um hvernig maður eignast fleiri stjörnur. Takk :)

Diljá

The Sims (24 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Síðan The Sims kom út fyrir PS2 var ég búin að vera að öfunda PS2 eigendur í laumi (algjört hneyksli) því mig langaði geðveikt í hann en ég á bara GC og ég hélt að ég þyrfti bara að sætta mig við það að fá aldrei Sims í leikjatölvuformi, ég myndi frekar selja sálu mína heldur en að kaupa PS2(veit ekki ef hverju ég er svona bitur út í þessa tölvu). En á laugardaginn fór ég í Kringluna og ákvað að kíkja í BT til að sjá hvort eitthverjir skemmtilegir leikir væru komnir og viti menn!!! Það fyrst...

Animal crossing :) (6 álit)

í Leikjatölvur fyrir 21 árum
Það er tæpur mánuður síðan ég keypti mér hinn margrómaða Animal Crossing sem BT voru svo vænir að selja hér á klakanum þó hann ætti ekki að koma út í Evrópu. Ég er búin að ná takmarkinu, ég er búin að borga stærsta húsið. Ég bjóst við einhverju brjáluðu en ekkert gerðist nema það að nú er stytta af charakternum mínum fyrir framan lestarstöðina í bænum mínum. Innbúið mitt er ljótt því það eina sem ég er búin að vera að pæla í er að borga skuldina, það búa fáir í bænum mínum og allir sem...

amerískir leikir (4 álit)

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 1 mánuði
ég man ekki í hvaða grein hér á huga ég las um þetta en ég er nokkuð viss um að ég las þetta. Einhver nefndi að til væri eitthvað fyrir GC þannig að maður gæti notað ameríska og evrópska leiki í hana. Ef einhver veit eitthvað um málið plís látið mig vita!!! ég vill amerísku leikina!!!

Diljá

Runólfur minn (4 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég á 6 ára lítinn krúttlegan pekingeser sem heitir Runólfur en er nú samt oftast nær kallaður Runni. Hann er algjör gikkur og borðar ekki neinn hundamat og ekki þurrfóður nema við blöndum því í matinn hans eða leikum með það. Ef hann fattar að við erum að borða eitthvað annað en hann þá vill hann ekki sjá það, hann vill helst sitja við borðið með okkur hinum og hefur gert það. Hann á voffabangsa sem heitir voffinn og er orðin voða sjúskaður, vantar í hann augun og nefin og bæði eyrun eru...

18.nóvember (11 álit)

í Sápur fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Í dag kom í ljós að Libby dó ekki en hún var í lífshættu eftir fæðinguna og þurfti að fara í aðgerð, Susan var ógeðslega leiðileg við Drew og kenndi honum um hvað hafði skeð og vildi svo ekki tala við hann, djöfulli fór það í taugarnar á mér, hvernig getur hún verið svona mikil tussa þó hún hafi auðvitað verið í sjokki og allt það. Strákurinn þeirra er algjör dúlla. Libby vaknaði eftir aðgerðina og það virtist vera allt í lagi með hana. Steph og Woody spjölluðu lengi saman um hvernig lífi...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok