Það er tæpur mánuður síðan ég keypti mér hinn margrómaða Animal
Crossing sem BT voru svo vænir að selja hér á klakanum þó hann ætti
ekki að koma út í Evrópu. Ég er búin að ná takmarkinu, ég er búin að
borga stærsta húsið. Ég bjóst við einhverju brjáluðu en ekkert gerðist
nema það að nú er stytta af charakternum mínum fyrir framan lestarstöðina
í bænum mínum. Innbúið mitt er ljótt því það eina sem ég er búin að vera
að pæla í er að borga skuldina, það búa fáir í bænum mínum og allir sem
flytja inn flytja burt tveim dögum seinna.

Ég er með nokkrar spurningar handa ykkur sem virðist vita allt um
tölvuleiki :)

Hvað veldur því að fólk flytur alltaf burt úr bænum mínum? ég reyni að tala
við það og vera nice en þau flytja samt.

Hvernig get ég fengið fleiri NES leiki? Ef einhver á code fyrir ice-climbers
væri það mjög vel þegið.

Getur búðin stækkað eitthvað meir en upp í Nookway?

Animal crossing kveðjur,
diljaa
-Það er snákur í stígvélinu mínu