Jæja kæra dagbók, ég er byrjaður í ræktinni. Ég fór í fyrsta sinn í dag.
Þegar ég var búinn í sturtunni hringdi GSM síminn. Ég svaraði símanum.
“Halló”
“Hæ, ástin mín þetta er ég. Ertu enn í ræktinni.”
“Já ég var að koma úr sturtunni.”
“Allt í lagi, ég ætla ekki að trufla þig lengi. Ég er niðri í bæ. Mig
langaði bara að spyrja þig hvort ég mætti kaupa pelsinn sem ég sýndi þér

um daginn. Hann kostar ekki nema 450.000,-”
“Jæja ástin mín, fyrst þér líkar hann svona vel skaltu bara kaupa hann”
“Æi krúttið mitt þú ert svo góður við mig. Ég set hann þá á kortið.
Heyrðu og svo var það þetta með bílinn, ætlarðu að koma við og skoða bílinn
sem við vorum að spá í.”
“Æi nei, nú vil ég að þú farir og gangir frá kaupum á nýjum bíl. Ég hugsa
meira að segja að við ættum að leyfa okkur að kaupa nýjan Porsche frá
Bílabúð Benna. Komdu mér á óvart og vertu búin að ganga frá því þegar ég
kem heim, og hafðu hann með öflugum aukahlutum.”
“Ohh ástin mín þetta er aldeilis ólíkt þér. Þú sem ert alltaf að leggja
áherslu á að spara, en ég geri þetta. Heyrðu fyrst þú ert í svona miklu
stuði. Ég sá að húsið sem okkur langaði svo í á Arnarnesinu er enn til
sölu.
Það eru settar á það 45 milljónir. Ættum við kannski bara að slá þessu upp
í
kæruleysi og kaupa það.”
“Æi hjartað mitt, ég hef ekki tíma í það, getur þú gengið frá því. Við
þyrftum reyndar að taka 100% lán fyrir því en það er nú í góðu lagi.
Bjóddu
42 milljónir og vittu hvað kemur út úr því.”
“Ohhhh spennó, ég er alveg viss um að við fáum húsið, það er búið að vera
svo lengi á sölu. Sjáumst svo í kvöld ástin mín. Bless”
“Bless”, sagði ég og lagði á.
Að þessu loknu ákvað ég að hegða mér heiðarlega, veifaði símanum og spurði
viðstadda, “Á einhver ykkar þennan síma.”
-Það er snákur í stígvélinu mínu