Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Könnun um gegnsæja hluti

í Heimspeki fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Er ekkert ljós af því það er myrkur eða er myrkur af því að það er ekkert ljós?

Re: Ég er jarðarbúi, hvað með þig?

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Öll dýrin í skógnum eiga að vera vinir. Og ef eitthvað dýr er með einhvern kjaft og vill ekki vera vinur hinna dýranna þá á bara að buffa það svo illa að mamma þess þekki það ekki aftur.

Re: Kommúnismi lausn eða vandamál?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Skilgreining þín á bókstafstrú er ansi opin og mætti setja allar stjórnmálastefnur og trúarbrögð inn í hana. Já, það er hægt að vera bókstafstrúaður á ansi margar stefnur. Ef einhver trúir því að einhver fastmótuð stefna sé einhver algildur sannleikur þá myndi ég segja að viðkomandi væri bókstafstrúaður á viðkomandi stefnu. Síðan segirðu að frjálshyggja sé ekki bókstafstrú af því að hún snýst ekki um að banna neitt. Í fyrsta lagi sagði ég ekki að stefna þyrfti að snúast um að banna neitt til...

Re: Kommúnismi lausn eða vandamál?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Eins og ég sagði þá er þetta ofbeldishugtak ansi teygjanlegt og ég vil kalla það að banna fólki eitthvað ofbeldi. Ef þú vilt það ekki þá gott og vel, en það þýðir að það er ekki ofbeldi að banna þér að nota eiturlyf, banna þér að labba niður Laugarveginn, banna þér að stinga puttanum á þér inn í kertisloga, banna þér að ganga í fötum og að banna þér að fara út úr húsi. Mér finnst það afskaplega furðuleg skilgreining en ef þú vilt þá geturðu alveg notað hana. Og hvað er það sem ákvarðar...

Re: Kommúnismi lausn eða vandamál?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þú virðist halda að ofbeldi sé að banna fólki eitthvað og ég geri ráð fyrir út frá því sem þú skrifar að þú haldir að frelsið sé að leyfa fólk eitthvað, en svo er ekki. Er það ekki ofbeldi að banna eitthvað? Er það þá ekki ofbeldi ef ég banna þér að neyta eiturlyfja? Er það ekki ofbeldi ef ég banna þér að labba niður Laugarveginn? Er það ekki ofbeldi ef ég banna þér að stinga puttanum inn í kertisloga? Ég get ekki verið sammála því. Segjum til dæmis að ríkið banni þér að fara út úr húsi nema...

Re: Kommúnismi lausn eða vandamál?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég er búinn að skýra þetta svona 100 sinnum fyrir þér og þú ert ekki að ná þessu og kemur alltaf með sömu rökvilluna. Hvaða rökvilla er það? Ég skal reyna að útskýra þetta á einfaldan máta fyrir þig, ef það stendur logandi kerti á borði fyrir framan þig þá ræður þú hvort þú setur höndina í logan eða ekki. Ef þú setur hana í logan þá brenniru þig en það þýðir samt ekki að kertið hafi brennt þig því í raun varst það þú sem brendir þig á loganum sem kemur af kertinu, ákvörðunin um að setja...

Re: Kommúnismi lausn eða vandamál?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Af hverju er það ofbeldi að taka eitthvað frá einhverjum sem á það? Þú rökstyður þetta ekkert en krefst skýringa á því af hverju eignarrétturinn sé ofbeldi. Hvernig væri að bæta úr því? Eignaréttur: val–> ekkert gerist eða val–>ofbeldi. Þetta er bara rugl. Ég gæti alveg eins bannað þér að labba niður Laugaveginn og sett dæmið upp nákvæmlega svona. Ef þú labbar niður Laugarveginn þá ertu ekki að beita mig neinu ofbeldi. En ef ég hins vegar ætti Laugarveginn og segði við þig að ég myndi lemja...

Re: Kommúnismi lausn eða vandamál?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Eignarrétturinn er víst ofbeldi. Ofbeldið felst í því að fólk má ekki taka það sem ríkið segir að einhver annar eigi því þá er það beitt valdi. Og það er óháð því hvort fólk telur að eigandinn eigi skilið að eiga hlutinn eða ekki. Ef einhver fær td 100 milljónir í arf þá hefur hann ekkert unnið fyrir þeim, af hverju má hann þá einn nota þær? Það að segja við einhvern að viðkomandi hafi val um að gera ekki eitthvað eða gera það og sæta eftir það ofbeldi er ofbeldi. Ef ég segi við þig að ef þú...

Re: Kommúnismi lausn eða vandamál?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ef þú segir að fólk geti bara flutt burt ef það er ekki sátt við skort á þjónustu, þá segi ég bara við þig eins og áður að þú getur þú bara flutt burt ef þú ert ekki sáttur við lögin í landinu. Þegar þú segir að fólk geti bara flutt ef það er beitt ofbeldi af hálfu ríkisins er það sama og að segja að ofbeldi er í lagi svo framanlega sem fólk geti flúið það. Þetta er dáldið asnalega sett fram. Ofbeldi er ekki það sama og ofbeldi. Td eins og eignarrétturinn. Hann er ofbeldi. Samt finnst mér...

Re: Kommúnismi lausn eða vandamál?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Mér finnst nú vera reginmunur á því að hafa aðgang að verslunarmiðstöð og því að hafa aðgang að læknisþjónustu og mig grunar að það sé ansi stór hluti fólks sem er sammála mér í því. Því styð ég það að séð sé fyrir læknisþjónustu fyrir þá sem ekki getað útvegað sér hana sjálfir, en ekki að það séu reistar verslunarmiðstöðvar út um allt land fyrir skattpeninga. Og þú bæði hrekur rökin um að fólk geti bara flutt annað ef það er ósátt við ástandið og notar þau síðan aftur. Reyndu að ákveða þig....

Re: Kommúnismi lausn eða vandamál?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þetta er mjög gott dæmi um að menn séu komnir í rökþröng þegar þeir segja þú þarft ekki að búa hérna. En það var einmitt það sem þú gerðir. Þú sagðir að fólk þyrfti ekki að búa í sveit. Ég sagði bara á svipaðan hátt að þyrftir ekki að búa á Íslandi. Og ef þú finnur ekki land sem er án kvaða þá er það einfaldlega ekki næg eftirspurn eftir slíku. Þá verðurðu bara að bíta í hið súra epli þess sem ágirnist eitthvað sem er ekki á boðstólunum sökum ónægrar eftirspurnar. Ég sagði ekki að ég væri á...

Re: Kommúnismi lausn eða vandamál?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Að neyða mig til að halda uppi þjónustu fyrir fólk sem hefur kosið það að búa í einhverju krummaskuði er ofbeldi. Það hefur marga kost að búa úti á landi en líka ókosti fólk verður bara að velja og hafna. Þú ert ekkert neyddur til þess að borga. Þú kýst að búa í þessu krummaskuði sem heitir Ísland og því fylgir að þú þarft að borga þennan hrikalega skatt. Það hefur marga kosti að búa hérna eins og t.d. það að vita að ríkið sér til þess að fátækt fólk út í sveit drepst ekki bara ef að það...

Re: MOORHUHN

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þa er skrifað f4g0tz. Kunniði ekki íslesgu eða.

Re: Við þurfum að meðtaka Jesú til að losna við byrðarnar

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég vissi ekki að greinunum þínum hefði verið hafnað á Dulspeki og Heimspeki. Það þyrfti kannski eins og þú sagðir sérstakt trúaráhugamál þar sem þú getur boðað trúna. Ég er samt á því að þetta eigi ekki heima á Deiglunni og ætti kannski frekar að sakast við þann sem samþykkti þetta frekar en þig. En varðandi hitt. Hvernig geturðu fengið það út að það að DREPA, og þá oft á mjög grimmilegan hátt, fólk fyrir að fremja “syndir” (margar af þessum “syndum” er eitthvað sem í dag er ekki einu sinni...

Re: Við þurfum að meðtaka Jesú til að losna við byrðarnar

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Fyrst þetta er svona mikið mál þá af hverju er ekki stofnað nýtt áhugamál sem varðar kristna trú? Af hverju ætti að gera það? Af hverju sendir þú ekki bara greinarnar þangað sem þær eiga helst heima eins og t.d. Dulspeki eða jafnvel Heimspeki? Ekki sendi ég inn greinar um Grand Theft Auto á fiska áhugamálið og ef einhver segir við mig “Á þetta ekki frekar heima á Leikir eða Leikjatölvur” þá segi ég ekki “Ef þetta er svona mikið mál af hverju er þá ekki stofnað nýtt áhugamál sem varðar Grand...

Re: Við þurfum að meðtaka Jesú til að losna við byrðarnar

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Hérna er sniðug síða sem sýnir fram á ýmsar mótsagnir í Biblíunni. Cyberidiot og aðrir bókstafstrúaðir ættu að geta skemmt sér í lengri tíma við að útskýra fyrir okkur af hverju þetta er tekið úr samhengi, mistúlkað eða eitthvað í þá áttina. http://www.infidels.org/library/modern/donald_morgan/inconsistencies.shtml

Re: Önnur grein, núna í DV

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Maður fær heldur ekki nein stig út úr því að drepa hvernig sem að maður gerir það. Þetta er ekki rétt. Það er stjörnugjöf í lok hvers borðs og byggist hún að mestu á því hversu marga maður drap og hversu hrottalega maður drap þá. Síðan getur maður opnað bónusborð, svindl og ýmis uppköst af hlutum úr leiknum með því að ná nógu mörgum stjörnum. Vildi bara leiðrétta þetta.

Re: Við þurfum að meðtaka Jesú til að losna við byrðarnar

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Af hverju er þetta á Deiglunni? Á þetta ekki frekar heima á t.d. Dulspeki?

Re: Hvað er Anarkismi?

í Lífsstíll (gamli) fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.

Re: Gáta

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Kynsjúkdómur? Flatlús kannski?

Re: Brjálæðingur!

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þetta er nokkuð augljóslega grín.

Re: Kvennfyrirlitning í tölvuleik

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þetta er nú bara fáránlegt. Af svona 90 svörum þá eru svona uþb 10 frá fólki sem föttuðu þetta. Hversu heimskt getur fólk verið?

Re: 4 ný screenshot

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Efsta screenshottið? Mér finnst það nú frekar aumt. Það er eins og draw distancið sé álíka gott og í Liberty City. Hin screenshottin eru miklu betri. Hefurðu ekki kíkt á miniclippin á official síðunni? Ef það er eitthvað sem fær mann til að detta úr stólnum af spenningi þá eru það þau.

Re: Jón Steinar í Hæstarétt

í Deiglan fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Það er náttúrulega hið besta mál að Geir H. Haarde skipi rammpólitískan einkavin sinn og flokksforystu Sjálfstæðisflokksins í embætti hæstarréttardómara stuttu eftir að Björn Bjarnason skipar náfrænda Davíðs Oddssonar í samskonar embætti og mun þetta vafalaust stórauka traust almennings á því að Hæstiréttur sé dómsstóll sem hægt sé að treysta á. Ég skil ekki hvað fólk sér að þessu.

Re: GTA: San Andreas- Bigger Than U.S. Steel

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Það er búið að seinka leiknum til 29. okt. :(
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok