Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: G. W. Bush og samkynhneigðir

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Gaurinn er nú bara hreint út sagt fífl. Það er eitt ef einhver sérstök kirkja vill ekki gifta samkynhneigða, en að það sé stjórnarskrárbundið að slíkt megi ekki er nú bara fáránlegt. Skemmtileg mynd af honum líka. Hann er mun aulalegri á svipinn en venjulega.<br><br><font color=“red”>Pacman:</font> <b>ztYx | MadKillah</b> <font color=“blue”>Tetris:</font> <b>h4x3Rz | MazterHaxer</b> <font color=“lime”>Pong:</font> <b>XixoX | Bl4zTer</

Re: Dauðinn, sjálfið og tilveran

í Heimspeki fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það er endalaust hægt að pæla í þessu “sjálf” fyrirbæri og hvaða máli það skiptir fyrir fólk. Td væri maður til í það vera drepinn ef síðan væri sköpuð nákvæm eftirmynd af manni sem væri að engu leiti öðruvísi en maður var áður en maður var drepinn (sbr myndina Sixth Day). Og ef svo er ekki, af hverju ekki? Og ef maður væri til í slíkt, af hverju þarf eftirmyndin að vera nákvæmlega eins? Af hverju getur hún ekki verið svolítið öðruvísi? Maður er nú einu sinni að ganga í gegnum ýmsar...

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
“Hins vegar er megin þorri landsmanna á móti því að vera neyddur til að gera eitthvað. Það að neyða einhvern til að gera eitthvað er ofbeldi og ofbeldi er ólöglegt.” Þannig að ég þarf sem sagt ekkert að borga fyrir löggæslu, landvarnir, dómsvald og löggjafarvald? Því ef ég þarf þess þá er verið að neyða mig til að gera það og það að neyða einhvern er ofbeldi og ofbeldi er ólöglegt. “Af hverju ættu þeir sem borga ekki frekar að segja:,, Af hverju er ég ekki að borga hann er að borga?´´”...

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
“Megin þorri landsmanna finnst rétt að borga bætur til öryrkja, fatlaðra og annarra minnihluta hópa.” Megin þorra landsmanna finnst það rétt að það EIGI að borga til þeirra. Þeim finnst það ekki rétt að sumir sem vel geta borgað borgi ekki bara af því að þeir tíma því ekki. Þetta á að vera skylda, ekki valfrjálst rétt eins og það að virða lögin á að vera skylda, ekki valfrjálst. Þetta er það sem mér og megin þorra landsmanna finnst. Og auk þess, ef sumir borga ekki þá fara þeir sem borga að...

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ókei, ég skal hætta að vera dómharður þverhaus. Segðu mér þá einfaldlega hvað var rangt við það sem ég sagði. Hefurðu svar við því eða hefurðu það ekki?

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Bíddu, af hverju hrekurðu þá ekki það sem ég sagði með rökum í staðinn fyrir að segja bara: “Þetta er bara bull.” Ef þetta er svona mikið bull þá ætti það ekki að vera erfitt. “Já eða kannski haldið áfram að skrifa þar.” Já, hinir sauðirnir verða að hafa eittvað að lesa.

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
“Af hverju má ekki segja fuck í miðlum BNA?” Nú auðvitað til þess að áhorfendur verði ekki pirraðir eða reiðir af því að heyra þetta hættulega orð. “Takk fyrir að snúa mér af villu míns vegar.” Já, ekkert að þakka.

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
“Ekki vegna þess að mér finnst að ég hafi tapað, eða vegna þess að ég er málstopp” Segjum það þá bara. “Þú ert svo fastur á þinni ”skoðun“ að það þýðir ekkert að rökræða við þig.” Já einmitt, ég er sá sem er fastur á sínu. Svona öfugt við þig, þar sem þú ert mjög opinhugaður og tilbúinn að pæla í hinu sjónarmiðinu. “Það að líkja síðan frjálshyggju við kommúnisma með svona rökleysu og bulli er síðan ekki bara pirrandi heldur gerir það mig reiðann.” Í hverju felst rökleysan? Það er nefnilega...

Re: Rúsínur og íkornar

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
“En hugmyndin liggur samt enn í einhverju sem er fyrir utan mannshugan, að því er virðist. Eins og brýr og vísindi, og hvers konar þesslegt dót.” Jú, ætli það sé ekki þannig.

Re: Rúsínur og íkornar

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
“Málið er að brú stendur þó enginn mannlegur hugur sé þarna til þess að samþykkja hana. Ljósaperan lýsir þegar rafmagn er leitt í gegn um þræði hennar. Tölvan okkar virkar (vonandi) þegar við erum að pikka inn þennan texta. Epli halda áfram að falla til jarðar. Við tökum fúkkalyf við sýkingum, og drepumst því líklegast ekki af sýkingum. Þessir hlutir eða fyrirbæri eru hugmyndir í grunninn. Ég get ekki séð að þær séu réttar vegna þess að við ákveðum að þær séu það. Nei, þær eru réttar því þær...

Re: Lögleiðing Vs Bann

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
“En þannig er það með þessa frjálslyndu jafnaðarmenn að þeir deila ekki einni hugsjón.” Og hvað með það? “bara fá sem mest út úr ríkinu fyrir sig og sína.” Það getur vel verið að það séu einhverjir sem geri það og kalli sig líka frjálslynda jafnaðarmenn. En þá eru þeir einfaldlega fífl. En ég er ekki þeir. Það að þeir séu að fylgja jafnaðarstefnu út af eigin hagsmunum gerir mig ekki sekan um það sama. Ég er einstaklingur með minn eigin huga og eigin skoðanir og þær eru ekkert í líkingu við...

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hvernig er verið að brjóta á sjálfseignarrétti fólks með því að segja sína skoðun á því? Því það að leggja aðra í einelti með orðum er einfaldlega skoðanaskipti. Ef allir í bekknum eru sammála um það að Tóti sé fífl þá eru þeir bara að segja sína skoðun á honum með því að láta hann vita af því að þeir telji hann vera fífl. Ég á erfitt með að sjá það hvernig verið er að brjóta á Tóta með þessu. Ef hann verður þunglyndur af þessu og fremur sjálfsmorð þá er það bara hans val.

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
“Útskýrðu endilega fyrir mér hvað þú sérð slæmt við það frelsi sem frjálshyggjumenn boða. Mér þætti mjög vænt um ítarlegt svar takk.” Það sem er slæmt við það er það sama og er slæmt við stjórnleysi. Það er ekkert yfirvald til þess að borga fyrir menntun fátækra barna, til þess að borga fyrir heilbrigðisþjónustu fyrir þá sem hafa ekki efni á henni osfrv. Ef maður treystir fólki til þess að borga eins og hverjum hentar þá endar það einfaldlega á því að sárafáir borga. Það væri svipuð þróun og...

Re: Lögleiðing Vs Bann

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hvað með níhilisma? Hann er samkvæmur sjálfum sér. Og það að frjálslynd jafnaðarstefna sé mismunandi eftir einstaklingum þýðir einfaldlega að frjálslyndir jafnaðarsinnar skoði báðar hliðar málsins og vegi og meti kosti og galla eftir því sem þeim finnst mikilvægt. Frjálshyggjusinnar aftur á móti fara bara á frjalshyggja.is eða glugga í einhverja bók eftir Milton Friedman og sjá þar hvaða hliðar þeir eiga að sjá og hverjar þeir eiga að loka augunum fyrir. Ef þú spyrð mig þá vil ég frekar vera...

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
En er þetta ekki skerðing á málfrelsi? Fólk sem er að leggja aðra í einelti með orðum er bara að segja sína skoðun. Ég hélt að málfrelsi væri eitt af grundvallaratriðum frjálshyggjunnar.

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Gott mál. Þá erum við sammála.” En það sem við erum ósammála um er það að þú virðist líta á þessa frelsisskerðingu sem einhverja heilaga kýr sem má ekkert hrófla við, jafnvel til að gera hlutina sanngjarnari. “Það er alls ekki það sem ég er að segja. En til þess að verða ríkur þá er ekki nóg að vera bara duglegur. Þú þarft blöndu af öllum þessum þáttum.” Og ekki spillir að búa í landi með nóg af vinnumöguleikum og/eða eiga foreldra sem eiga nóg af peningum. Ég er viss um að það er fullt af...

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Eins og ég sagði áður, ef maður skerðir eignarrétt fólks til að virða frelsi annara endar maður með hvorugt.” Það er einmitt það sem ég var að segja. Ég vil hafa eignarréttinn því annars endar heimurinn í rugli. Ég vil sem sagt frelsisskerðingu til þess að heimurinn fari ekki í rugl. “Ef þú værir bláfátækur og bla bla bla þá ættir þú alls ekkert meira tilkall til annara manna eigna.” Ég sagði það ekki. Ég var bara að taka dæmi um manneskju sem vildi kannski ekki hafa eignaréttinn. Þú sagðir...

Re: Rúsínur og íkornar

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“En hvers vegna fá sumir góðar hugmyndir en aðrir síður góðar hugmyndir? Og síðast en ekki síst. Hvað gerir góða hugmynd góða??? (Er það háð mannlegum eiginleikum?!)” Það sem gerir góða hugmynd góða er það að hún sé það sem mannshugurinn skilur sem “góð hugmynd”. Ef mannshugurinn skilur “góð hugmynd” sem það sem við myndum skilja sem “kanína” þá er kanína góð humynd. Málið er að það skilja flestir “góð hugmynd” á svipaðan hátt, þeas að hún sé hugmynd sem byggir á því sem við skiljum sem...

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Móðganir eru nú nokkurn veginn bannaðar til að mynda með meiðyrða lögum.” Vilt þú sem sagt að fólki sé refsað fyrir það að móðga fólk? Og það þarf ekkert að vera að allir vilji hafa eignaréttinn. Ef ég væri t.d. bláfátækur og ætti ekki mat á borðið þá gæti verið að ég vildi frekar sleppa því að hafa eignarréttinn. Og ef það er í rauninni þannig að allir vilja hafa eignarréttinn þá þýðir það einfaldlega að enginn vill fullkomið frelsi. Ég er ekkert að segja að ég vilji að eignarréttur sé...

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Brjóta á eignarétti? Hvaðan nákvæmlega kemur þessi “eignaréttur”? Þessi réttur til þess að hefta frelsi fólks til þess að nota hluti, hvaðan kemur hann? Og nei, nei, það þarf ekkert að nauðga fólki eða berja það til að skaða það. Það er nóg að t.d. móðga sumt fólk til að skaða það. Því gæti liðið illa og jafnvel orðið þunglynt. Eigum við þá ekki bara að banna móðganir?

Re: Lögleiðing Vs Bann

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Já honum gæti liðið illa ef um einhverjar árásir eru að ræða. Þá ert þú að gera rangt. Samt varðar það ekki við lög að kalla einhvern aula.” Eru lög ekki til þess gerð að refsa fólki fyrir rangar gjörðir og hindra það að þær séu framkvæmdar aftur? Ætti þetta þá ekki að vera ólöglegt? “Í raun nær réttur minn sem og þinn ekki lengra en réttur næsta manns.” Já, en hver ákveður hver réttur næsta manns er? “Málið snýst í raun ekki um fíkniefni, og skaðsemi þeirra. Málið snýst um frelsi hvað þú...

Re: Lögleiðing Vs Bann

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Nei, fórnarlambið er sá sem ég kalla aula. Honum eða henni gæti liðið illa og þar með er ég að skaða hann eða hana. Ps. Ég er karlkyns.

Re: Lögleiðing Vs Bann

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ef ég tek hluti frá einhverjum þá er ég ekki að gera honum mein frekar en ég er að gera honum mein með því að kalla hann aula.

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Var þessu beint til mín, eða hvað? Mér sýnist það á samhenginu. Ef að “fullkomið frelsi” er það frelsi sem ég vil að ég og aðrir hafi, þá er frelsi til þess að stela og skemma annarra eigur að vild það ekki. Hins vegar ef að fullkomið frelsi er frelsi til að gera það sem maður vill án þess að skaða aðra þá er frelsi til þess að brjóta og bramla “annarra eigur” fullkomið frelsi. Og það að skaða aðra fyrir að brjóta og bramla “annarra eigur” er ekki leyft samkvæmt fullkomnu frelsi. Málið er að...

Re: Lögleiðing Vs Bann

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Úbs, það vantar “það” þarna í endann.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok