Tölvuleikurinn sem er vinsælastur í dag, Grand Theft Auto, er fullur af karlrembu og kvenfyrirlitningu. Þetta eru ungir menn að spila og halda þar af leiðandi að þetta sé allt í lagi. Í leik þessum er hægt að beita konum ofbeldi að vild. Einu konurnar í leiknum eru vændiskonur og klámstjörnur. Hægt er að saurga þær með því að misnota kynferðislega (það að nota vændiskonur jafngildir nauðgun) og drepa svo. Þetta er til skammar. Það veldur mér gríðarlegum áhyggjum að ung börn spili þetta, þá sérstaklega stelpur. Því þetta leiðir bara til þess að þær haldi að það sé allt í lagi að láta lemja sig og besta starfið sé að vera vændiskona.

Rannsóknir hafa sýnt að tölvuleikir gera börn ofbeldisfull. Þau brjótast inn í skóla og skjóta skólafélaga sína. Þess vegna er öruggt að þeir geta líka hvatt börn til að nauðga. Það þarf að banna svona leiki, þetta er eitur. Menn eyða orku í baráttu gegn dópi þó það sé bara eitthvað sem menn vilja. Leyfum dópistunum að reykja sig í hel. En við munum ekki leyfa ungum piltum að verða ofbeldisfullir. Stöndum saman rauðsokkur!

Karlmenn í nútíma samfélagi gera margir ekkert annað en að halda kvenþjóðinni niðri og beita líkamlegum yfirburðum til að saurga okkur. Þessi leikur er í rauninni æfingartæki ungra manna til þessarar yðju. Í umtöluðum leik fær maður stig fyrir að lemja konur. Er það tilviljun? Nei. Þetta er stórhættulegt. Víkingar taka völdin, læsið ykkur inni konur. Marsbúar gera árás. Frændi minn hefur spilað þennan leik mikið og er byrjaður að toga í hárið á systir sinni. Hann hefur breyst í kölska.

Látum börnin heldur lesa bilbíuna. Þar er alvöru boðskapur. Eins og t.d. að það sé ekkert mál að ganga á vatni og opna sjóinn til að ganga í gegn. Það er alvöru boðskapur. Ekki eitthvað rugl um ofbeldi og kvennfyrirlitningu og öfugugga háttalag.

Ungur drengur gekk að mér um daginn og horfði á mig undarlega. Ég sá að hann hafði illt í huga, hann hafði augljóslega verið heilaþvoinn af Grand Theft Auto og ætlaði sér að ráðast á mig. En ég sá við honum, ég er stærri og sterkari enda fullvaxin kona og sprautaði þess vegna piparúða í andlitið á honum og hljóp í burtu. Síðan kom pabbi hans að mér og beitti mig munnlegu ofbeldi. Kallaði mig brjálæðing.

Tölvuleikir eru æfingarvélar djöfullsins, enn eitt tól karlmanna til að halda kvennþjóðinni niðri. VÉR MÓTMÆLUM ALLAR!!

Marey