Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Frjáls vilji

í Heimspeki fyrir 20 árum, 2 mánuðum
En allt val þarfnast vilja. Og ráðum við í raun einhverju um eigin vilja?

Re: Frjáls vilji

í Heimspeki fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Málið er að þessi hringavitleysa endar á því að maður vildi eitthvað án þess að velja það að vilja það. Því er spurning hvort maður hafði í raun eitthvað val. Og ástæðan fyrir að fólk ákveður að gera eitthvað sem er því skaðlegt er sú að það vill það. Af hverju það vill það er síðan spurning. Ætli það sé ekki bara af því að það er heimskt og/eða það hefur einhvers konar gildismat sem segir því að eitthvað sé svo mikilvægt að það sé þess virði að skaða sig fyrir það.

Re: Frjáls vilji

í Heimspeki fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ástæðan fyrir því að við veljum eitthvað er sú að við vildum velja það. Síðan er spurningin af hverju við vildum það. og afhverju við veljum stundum að fara ekki eftir því. Hvað meinarðu? Fara eftir hverju?

Re: Frjáls vilji

í Heimspeki fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Við veljum einfaldlega það sem við viljum velja. En veljum við hvað við viljum? Og ef við gætum gert það þyrftum við þá ekki fyrst að vilja velja hvað við viljum o.s.frv.

Re: Ef þú gætir..

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Bæta inn “laga innlegg” valmöguleika.

Re: Mannréttindi

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Já. Rocky er sko enginn aumingi.

Re: Mannréttindi

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Mér finnst að fólk eins og þú ætti að flytja til Rússlands, búa í skúr yfir veturinn og þjálfa þar líkamlegan styrk sinn út í guðshvítri náttúrunni svo það geti orðið heimsmeistarar í boxi.

Re: Sovietmerkið

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Jeij!

Re: Sovietmerkið

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Jeij, Sovíetmerkið! Lengi lifi hið flotta Sovíetmerki!

Re: Nauðgun á lagi.

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Nei, þú ert ekki einn um það.

Re: Gelgjublog!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Áhugamál mín eru strákar og bara að fara í kringluna með stelponum skoh :P Ég er sirka 1.59 á hæð og já er ekket að farah að segja hvað ég er þung skoh!! :Pég elska.. magga… rósir.. vanillu kerti…þig ;) … mömmu…vinkonur mínar….myndaramma….sæta stráka….Nylon….Atomic Kitten og svo bara lífið :) .. og fötin mín Nikita og soleis :P Það er náttúrulega ekki fræðilega mögulegt að þetta sé ekki grín.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei, Ísland er mitt föðurland og ég vil að það verði fyrsta landið sem fær að njóta dásemda lausnahyggjunnar. Og öll valdarán eru algjörlega óþörf, því fyrr eða síðar mun fólk átta sig á skynsemi lausnahyggjunnar og kjósa Lausnaflokkinn. Og þá mun ný öld ganga í garð. Ekki öld steina, heldur framtíð lausna.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Lausnahyggjuhagkerfi virkar svona.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Í landi þar sem lausnahyggjan ræður ríkjum munu peningarnir alltaf verða jafn mikils virði. Sjáðu bara til.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nú, það er einfalt. Þú hlýtur að viðurkenna að mínus 60% skattar eru mjög vinnuhvetjandi. Af því leiðir að fólk mun vinna meira. Það leiðir síðan af sér meiri hagvöxt sem síðan leiðir til hærri launa. Að lokum verður fólk komið með svo mikið í laun að það getur gefið ríkinu peninga sem nemur því sem það hafði áður í skatttekjur, enda verða það bara spápeningar þá. Einfalt, ekki satt?

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
“Angra”? “Trolla”? Er það að “angra” eða “trolla” að koma fram með stefnu sem mun leysa öll vandamál og sameina vinstri og hægri menn undir einum fána, fána lausnanna. Það hafa ýmsir skrifað hér greinar um kommúnisma og frjálshyggju sem sumir myndu telja óraunhæfar og barnalegar stefnur sem eru í engum tengslum við raunveruleikann og bara leifar af gömlum kaldastríðs kreddum, en ég má ekki skrifa um lausnahyggju sem er stefna sem einkennist bæði af raunhæfum og þroskuðum þankagangi. Hvað vit...

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já, ég biðst afsökunar á því. Hins vegar er því ekki að neita að stalínismi og kommúnismi eiga margt sameiginlegt eins og þessa: “allir jafnir” hugsjón. Henni er síðan framfylgt með valdi ríkisins. Einnig er öll verslun í höndum hins opinbera, en eins og Sovétríkin sýndu þá er slíkt alls ekki hagkvæmt.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já, það er óþolandi þegar fólk kallar hlutina ekki réttum nöfnum. Geturðu trúað því að BÆÐI kapítalismi og kommúnismi hafa verið sagðir lausnahyggjustefnur. Bara af því það eru stefnur sem segjast ætla að leysa allan vanda. Það er náttúrulega ekki satt, lausnahyggja er mun skynsamari og raunhæfari en báðar þessar stefnur til samans.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei, X-Lausnaflokkurinn.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þversagnir eru bara til í huga þess sem ekki styður Lausnaflokkinn. Ef þú kýst Lausnaflokkinn muntu sjá það.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ógjörningur er bara blekking. Hefurðu ekki heyrt slagorðið: “Impossible is nothing”. Það sama á við hér.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Jú, þeir myndu gerast ef Lausnaflokkurinn fær kosningu. Hvernig þeir myndu gerast er síðan ekki þitt vandamál.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ef það mun kosta 2 vörubíla af peningum að kaupa snúð þá mun það vandamál líka verða leyst. Til þess er jú Lausnaflokkurinn, að leysa vandamálin.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Eins og ég sagði í greininni þá þarf hinn almenni borgari ekki að hafa áhyggjur af því hvernig þetta verður gert, heldur aðeins því hvernig hann getur hjálpað Lausnaflokknum að gera það. Og ég svara þeirri spurningu líka í greininni.

Re: Lausnaflokkurinn

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já, Lausnaflokkurinn er góður flokkur. Nefndu mér einhvern annan flokk sem getur gert báða þessa hluti í einu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok