Ég get engan veginn skilið hvernig fólk getur verið svona fúlt yfir dauðsföllum í þessari bók. Jú, auðvitað fannst mér þau ótrúlega sorgleg flest, sérstaklega Fred, Remus og Tonks, en that's life, get over it! Rowling tókst að mínu mati að sýna á ógleymanlegan hátt hvernig stríð fara fram. Fólk deyr í stríðum, og í þessu tiltekna stríði, var ekki við öðru að búast en að fólk nákomið Harry myndi deyja. Ef ég á að segja eins og er, bjóst ég næstum við fleiri dauðsföllum. Og þetta með að það sé...