Sæl verið þið. Eins og einhverjir hafa líklega tekið eftir, er fantasía hætt sem stjórnandi.
Ég viðurkenni að ég hef ekki verið neitt sérstaklega active hérna undanfarið, en ég ætla að reyna að breyta því eitthvað. Ég er ekki þannig manneskja að ég taki að mér starf og vinni það illa. Höndli ég það ekki, segi ég upp. Mig langar samt að biðja ykkur að gefa mér séns áður en þið farið að dæma.
Ætla ekki að gera neinar stórar breytingar til að byrja með, og sjá svo til. Hef einhverjar hugmyndir um hvað ég vil sjá nýtt hérna og hvernig ég ætla að framkvæma það, en það kemur allt í ljós þegar þar að kemur.
Kveðja,
Svana
Kveðja,