Svo virðist sem að það sé kominn nýr stjórnandi í staðinn fyrir fantasiu; svanaerla, sem ég óska nú bara til hamingju með stöðuna.

Mér finnst nú bara skringilegast að hún hefur sent inn aðeins 1 grein á /hp, en mig minnir að þegar ég sótti um hafi verið eitthvað lágmark af greinum sem viðkomandi hafði þurft að hafa sent inn. 10, ef ég man rétt og 1000 stig voru líka lágmark. Kannski sendi hún inn fullt af korkum og myndum.

(Já, ég var að stalkera hana, ég mundi ekkert hver þetta var og vildi vita í hvers höndum /hp væri). Ef hún kemur lífi í síðuna kvarta ég ekki. Samot og BudIcer hafa ekki beinlínis verið líflegir nýlega, ég get ekki munað til þess að hafa séð þá hérna í umræðum eða trivium.

Hvað finnst ykkur annars? Verðugur arftaki fantasiu?