Amma mín er með svart hár, það er ekki litað, bara ekkert byrjað að grána. Hún setur hárið alltaf upp í einhvern flottan snúð sem hún festir með feluspennum. Mér finnst það flott og það yngir hana jafnvel upp. Ég held að það fari bara flestum gömlum konum vel að vera með stutt, grátt, krullað hár. Annars ef kona hefur verið mjög lengi með sítt, svart hár og svo eldist hún er ekki víst hvort hún fái “ömmu-greiðslu” sem er annars mjög hugguleg finnst mér.