Ó guð. Sammi brunavörður. Ég man hvað mig langaði alltaf að snúa mér niður stöngina eins og hann fékk að gera. Frábært. Mér fannst ósla gaman að þessum ævintýraþáttum eins og skytturnar þrjár þar sem þeir voru allir hundar eða kettir, pósturinn Páll, Múmínálfarnir (bestir), Tuskudúkkurnar, He-man, Tommi og Jenni og allt það þar sem mátti segja eitthvað og gera eitthvað. Ég kveikti á barnaefninu í morgun því ég gat ekki sofnað aftur og reyndi að rifja aðeins upp gamla daga, en það var glatað....