Nei þú varst ekki einn. Ég sá þetta í sjónvarpinu. Ég efast ekki um að aðgerðir lögreglunar hafi verið harkalegar, of harkalegar, en það sást vel á myndunum að þeir skipuðu manninum að láta hendur fyrir aftan bak en hann hlýddi ekki. Þessi maður barðist um og reyndi að komast í burtu og við það duldu á honum höggin af kylfum tveggja lögregluþjóna. Mér fannst einmitt skrýtið að ég sá bara tvo lögregluþjóna reyna að handsama manninn en í fréttum segir að 6 hafi verið viðstaddir.