Já ég hef líka lent í þessu, meira að segja tvisvar. Í annað skiptið var það högni sem kom alltaf inn til mín og át matinn sem læðan mín átti og meig út um allt. Hann réðist aldrei á hana, en hún var mjög hrædd við hann og það var mikið hvæst. Þegar þetta var búið að ganga svona nokkuð langan tíma, talaði ég við eigandann og hann lét gelda högnann sinn, eftir það sáum við hann ekki aftur. Núna er hins vegar illgjarn villiköttur sem ræðst alltaf á greyið mitt, hann er búin að bíta hana og...