Ég er sammála, Rás 2 er þó frekar vettvangur slíks þáttar miklu frekar en Radíó X sem næst ekki um allt land. Auk þess er það skylda Rásar 2 sem útvarp allra landsmanna að miðla íslenskri menningu, þ.á.m. tónlist. Ný íslensk tónlist, bæði sú sem stóru útgáfurisarnir gefa út, svo og einstaklingar sem gefa út á eigin vegum, á fullkomlega rétt á því að vera sett undir sama hatt, og þess vegna fengju minna þekktir spámenn tækifæri jafnt á við hina þekktari, til að miðla sínu. Þáttagerðarmenn...