Ég er að verða sturlaður af spenningi, þvílíkt eðal hype, þetta er algjör snilld. Ég las þetta viðbótarefni, það hljómar mjög vel. Ég væri meira en til í að horfa á 4-5 tíma útgáfu af myndinni. Með fullri virðingu við Peter Jackson og tilraun hans til að gera myndina þolanlega fyrir hinn almenna borgara sem hafa ekki fanatískan áhuga á bókmenntum Tolkiens, að þá sakna ég margra mikilvægra atriða sem gefa réttari og dýpri mynd af miðgarði og þeim skepnum sem þar búa. kv skl