Margir hafa komið hingað inn á þennan hluta huga.is og sagt að fólk hérna sé geðveikt og truflað á geði og hvað eina ,en það sem þetta “réttsýna” fólk veit ekki af er að margt af þessu sem fólk er að lenda í er í rannsóknum hjá vísindamönnum um allan heim ,eins og t.d orka pýramýdanaformsins ,það var sannað fyrir heillri öld.Á staðsetningu stonehenge og mörgum svipuðum stöðum um alla vestræna evrópu þar sem jötunsteinarnir rísa er mikil orka ,og vísindamenn byrjuðu að kalla þessa orku því frumlega nafni “jarðorku” því að það er raunverulega mikil mælanleg orka við all flesta af þessum stöðum, þessir staðir voru áður fyrr notaðir til að lækna fólk og annars staðar tilbáðu fólk guði sína þar. Þegar fólk deyr og sér hvíta ljósið þá hafa vísindamenn að svo fullu sannað að það eigi sér stað í heila mannsins ,en það sem þeir geti ekki sannað eða af-sannað er afhverju fólk fær sýnir af lífi sínu og látnum ættingjum við dauðastund ,einnig hefur mælst orka á þeim stöðum er drauga gangur er til staðar ,miðlar eru viðurkenndir aðillar um allan heim og þeir hafa verið til staðar frá byrjun mannkyns. Jafnvel þótt að vísindin sanni ekki allt saman þá á fólk ekki að dæma fólk ruglað eða geðbilað þegar um svona málefni er að ræða ,því þá sannar það ótta þess við hið óþekkta og allt sem því fylgir.
Sálfarir hafa verið rannsakaðar í meira 2 aldir, spádómsgáfa hefur verið skrásett frá því fyrir kristsburð ,jafnvel fljúgandi furðuhlutir hafa verið skrásettir langt fyrir kristsburð ,og einnig skal muna það í öllum sögum læðist einhverskonar útgáfa af sannleikanum…
Nostradamus spáði fyrir fyrri og seinni heimstyrjöldina ,hann spáði fyrir fæðingu “anti-krists” og að hann myndi vera fæddur í millistétta fjölskyldu við bakka árinar Rín (reyndar hafa verið gerðar margar þýðingar af spádómum ND og er þetta sú útbreiddasta.)
Það sem ég vill meina með þessari grein er að ekki dæma fólk sem þú þekkir ekki og ekki dæma eitthvað sem þú hefur ekki hundsvit á.