Ég veit að ykkur er alveg sama hvernig umbúðir á mjólk eru útlítandi. Enda eru þið eflaust orðin eldri en 9 ára. En ég var líka að tala um börnin, það eru þau sem falla fyrir þessum fernum og það eru þau sem drekka frekar mjólk ef hún er sett í skemmtilegan búning öðru hvoru. Það var ein stelpa sem sagði við mig: ,,Ég er sammála þér með þetta. Ég vandi mig fyrst á undanrennu í denn vegna þess að hún var í bleikum umbúðum." Það er ekkert öðruvísi með krakkana núna, ef þeim finnst eitthvað...