Jæja ágætu hugarar, ég er í talsverðum vandræðum núna.
Þannig er máli farið að ég á 12 ára gamla stelpu sem er farin að stela úr búðum. Veit ekki nákvæmlega hversu oft hún er búin að gera þetta, en magnið er farið að skifta nokkrum þúsundum. Ég er búinn að gera eitt og annað til að koma henni í skilning um að þetta sé ekki það sem er talið æskilegt en það er alltaf sama sagan, grátur og efirtsjá en næsta dag er bara næsta lýgi. Talandi um lýgi, hvernig hefur ykkur gengið að fá börnin ykkar til að hætta að ljúga ?? það hefur kannski bara ekkert gengið ??? Endilega seigið mér hvernig þetta hefur gengið hjá ykkur…

Wabis Ofvirki í vandræðum
Wabis ofvirki