Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Helgarpabbar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Þetta er sniðugt kerfi sem vinkona þín og hennar fyrrverandi voru með. En eins og þú segir þá er þetta mjög mismunandi hjá öllum. Sumir foreldrarnir búa ekki einu sinni í sama sveitafélagi, hvað þá á sama stað á landinu svo þetta er frekar snúið. Ég hef líka tekið eftir því, þegar ég hef verið að fylgjast með svona pabbaheimsóknum hjá börnum sem ég þekki. Að þegar pabbinn eignast aðra konu og jafn vel börn þá breytist það sem gerist um helgarnar alltaf eitthvað. Ég er ekkert að setja út á...

Re: Helgarpabbar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Þakka þér fyrir að taka upp hanskan fyrir mig! Þú sagðir bara nákvæmlega það sem ég ætlaði að segja :)

Re: Helgarpabbar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Það hefur væntanlega verið mjög gaman :)

Re: Helgarpabbar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Nei ég var nú sjálf heldur aldrei í svona helgarpabba heimsóknum. En veistu hvað? Ég held að þegar á heldina er litið hafi pabbi þinn haldið þessu nokkuð vel saman. Ég meina hann hélt greinilega bara áfram að gera það sem hann var vanur að gera á daginn þó svo að þú værir þarna. Auðvitað er náttúrulega gaman að fara í bíó og svona en ég held að það sé ekki gaman ef það er það sem maður gerir ALLTAF þegar maður kemur til pabba síns. En kannski allt í lagi svona af og til. En eins og þú orðar...

Re: Spurning úr bók 5

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Okey, þakka þér kærlega fyrir þessar upplýsingar! Ég hef mikið verið að velta þessu fyrir mér um hann Peeves.

Re: Friends

í Gamanþættir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Þetta er ágætt hjá þér. Af hverju skrifaðir þú ekki svona dálk um Chandlers eins og þú skrifar um alla aðra? Svo er eitt sem mig langar bara til þess að leiðrétta hjá þér og það er þegar þú segir að faðir Phoebe hafi stungið af áður en hún fæddist. Það er ekki satt því að hann stakk fjölskylduna af þegar þær Ursula voru eitthvað um 1 árs aldurinn. Þetta skiptir kannski ekki öllu, en þar sem þú varst að tala um þetta fanst mér bara rétt hjá þér að hafa þetta rétt :)

Re: Spurning úr bók 5

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Já það verður spennandi. Þá fáum við kannski að vita hvernig stendur á því að hinir draugarnir í skólanum segja að Pevers sé ekki alvöru draugur. Og svo er líka gaman að fá meiri upplýsingar um aðra karagtera sem maður les bara um í skólanum. Ég á Quidditch bókina að vísu á ensku en mér finnst að það eigi að þýða þessar aukabækur yfir á íslensku. Það borgar sig alveg örugglega þar sem markhópurinn hér er mjög stór bæði fyrir þá sem lesa enskuna og einnig íslenskuna. En við sjáum bara hvað setur.

Re: Gerist ekki betra!

í Rómantík fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Okey svo þegar þú hittir hann fyrst varstu 12 ára! Og einhverra hluta vegna gastu ekki hætt að hugsa um strák sem þá var 16 ára. Nei veistu það er satt hjá þér, ég get ekki skilið að einhver sem er 14 ára sé búin að finna ástina sína :s Auðvitað hélt ég það líka þegar ég var 14 ára að ég væri búin að finna ástina, en komst svo að því nokkrum árum síðar að ég hafði alls ekki kynst henni eins vel og ég hélt ;) En ég veit þó um fólk sem byrjaði saman 14 ára og var saman alveg þar til núna í vor...

Re: Bon Voyage!

í The Sims fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Vá þetta var slemmtileg lesning! Þetta er ekkert smá spenandi leikur! Þetta er bara gamli góði sims vicasion leikurinn með smá betrumbótum! Það er mjög líklegt að maður fjárfesti í einum svona og fer að ferðast með simsana sína um heim allann ;)

Re: Prakkari

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Hehehe, þú hefur greinilega verið hörku stóra systir! Sjálf á ég lítinn bróður sem fékk eitthvað að finna fyrir þessu líka (þar að segja að leika sér í stelpuleikjum). Því miður tókst mér aldrei að klæða hann í kjól, en þegar hann var einhverra mánaða greiddi ég hann rosa flott og setti gosbrunn í það litla hár sem hann var með ;)

Re: Vinkonurnar 3

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Rosalega eru þetta falleg systkini!

Re: Spurning úr bók 5

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ætlar hún að gefa út alfræðiorðabók!?! Vá hvað ég hlakka til að fá hana í hendurnar! Skildi hún verða þýdd yfir á íslensku?

Re: bara vinir???

í Rómantík fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Gott að ég gat hjálpað þér. Og í sambandi við heimsendinn, þá hef ég reynslu af honum líka. Ég held að hann þroski mann bara og þegar maður er komin yfir þetta þá er maður bara sterkari :) Auðvitað er þetta samt alltaf mjög erfitt og leiðinleg en maður kemur úr þessu með nýja lífsreynslu á bakinu sem maður getur alltaf haft með sér áfram í lífinu.

Re: Hver er ykkar uppáhalds óþokki?

í Teiknimyndir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Já! Alveg rétt, hann hét víst Gaston. Það er svo langt síðan maður hefur horft á þessa mynd svo nöfnin hafa eitthvað skilast til.

Re: bara vinir???

í Rómantík fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Okey ég get alls ekki sett mig í hans spor, augljóslega þar sem ég þekki hann ekkert og hef heldur aldrei verið karlmaður ;) En það er eitt sem stakk mig svolítið í þessu og mér finnst að þú þurfir að hugsa aðeins um og það er að gaurinn er í neyslu fíkniefna. Ég skynjaði það með því að lesa þennann texta þinn að þú ert ekkert rosalega háöldruð og því finnst mér að þú ættir að gæta þín aðeins á þessu öllu. Ég er ekkert að segja að gaurinn sé eitthvað hættulegur eða neytt þannig, en hann er í...

Re: Hamingjusöm:)

í Rómantík fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Til lukku með þetta allt saman! Vonandi á bara allt eftir að ganga svona vel hjá ykkur áfram :)

Re: Yndislega 3.bók

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Já þetta var skondið atriði í bókinni, líka þegar Harry og Ron standa upp og hún spyr þá hvor þeirra hafi verið á undan? Hún varð náttúrulega mjög svo áhyggjufull en það sama gildi víst ekki um hina við borðið ;)

Re: Myndir vs. Bækurnar

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Já þetta er allt saman hrein snilld! Samt finnst mér bækurnar betri en myndirnar, kannski vegna þess að maður kemur meiru fyrir í bók en mynd?

Re: Fyrsta mikka mús teiknimyndin

í Teiknimyndir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Já há! Þetta er nokkuð öðruvísi teiknimynd en við eigum að venjast í dag, en þetta er víst upphafið ;)

Re: Mary poppins

í Teiknimyndir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Jú lagið er úr Mary Poppins og er spilað í lok mydnarinnar þegar allir eru úti með flugdreka og Mary fer frá fjölskyldunni. Frændi minn átti einu sinni mjög skemmtilega barnakasettu sem hét Bestu barnalögin (eða eitthvað álíka) sem á voru fult af lögum og þar á meðal þetta lag með íslenskum texta. Ég man því miður ekki hver söng það, en það var kona svo mikið man ég ;) En fyrst þú ert að leita þá gætir þú alltaf spurt útvarp Latabæ.

Re: Mary poppins

í Teiknimyndir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Gary Poppins er ekki til, þetta nafn var brandari sem átti að vísa til Mary Poppins ;)

Re: Lion King

í Teiknimyndir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Lion King (eða Konungur Ljónanna) var náttúruelga best! Mest lagt í hana og hún er svona sígild mynd núna. Lion King II (eða Stolt Simba) var alveg ágæt, en hún var kannski aðeins of væmin :s Samt alveg ágæt en hún er ekki eins góð og þessi fyrsta. Lion King III ( eða Konungur Ljónanna Hakúnamatadda) var tvímælalaust fyndust af þessum myndum! Ég held að ég og litli bróðir minn höfum sjaldan hlegið eins mikið af mynd og þegar við vorum að horfa á þessa mynd í fyrsta sinn! En svona þegar á...

Re: Hvort viljið þið?

í Teiknimyndir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Þegar ég var lítil þá bjó ég í Danmörku, þannig að fyrstu kynni mín af Disney myndum var að allir karagternir töluðu dönsku. Þegar ég flutti heim var ekki farið að þýða myndirnar yfir á íslensku svo maður varð bara að horfa á þær á enskunni (samt voru svona þættir eins og Sögur úr Andabæ og fleiri þýddir yfir á íslensku). En svo stuttu eftir að ég flutti heim var farið að þýða myndirnar yfir á íslensku og tók ég því fegins hendi (enda skildi ég ekki enskuna og gat ekki lesið textan). Eftir...

Re: Vefsíður

í Teiknimyndir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Það er misjaft. Stundum er maður bara að gera ekki neitt og eyðir því tímanum í það að skoða Disney síðuna, ásamt fleirum síðum. Stundum fer ég þó gagngert þangað inn til þess að fara í leikina sem þar eru ;)

Re: Hver er ykkar uppáhalds óþokki?

í Teiknimyndir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Sko Skari og Jafar eru mjög minnistæðir báðir. Kannski vegna þess að þeir voru báðir kunngjörðir heiminum um svipað leiti og ég horfði mikið á þá ásamt litla bróður mínum. Enda eru þeir Ósköp illir báðir tveir en samt sem áður með sinn illa fynda húmor sem er ennþá hægt að hlæga að! Gilbert, held ég að hann heiti vodni karlinn í Fríðu og Dýrinu. En þegar sú mynd kom fyrst út, árið eitthvað um 1991, var ekki ennþá farið að þýða Disney myndir yfir á íslensku. Ég skildi alls ekki enskuna og gat...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok