bara vinir??? Þetta er svo erfitt að útskýra en ég ætla að reyna
Ég er búin að vera að tala við strák í heilt ár, á msn og þannig og við þekkjumst ýkt vel. Við erum bestu vinir og þannig. En höfum ekkert hist það oft. Málið er að ég er hrifin af honum og ég veit ekkert hvað ég á að gera. Og ég er ekki viss hvað hann vill. Það er það versta, hvernig getur maður vitað hvort strákur sé hrifinn af sér eða ekki? Allavega þá er hann frábær strákur, höfum tvisvar horft á mynd saman og í fyrra skiptið þá svona vorum við bara að horfa á myndina og ekkert annað, sátum varla hlið við hlið! Það var líka fyrsta skiptið sem við hittumst svona. Síðan núna fyrir stuttu vorum við að horfa á mynd og sátum ýkt þétt saman og svo var ég að reyna að koma mér fyrir og lét lappirnar minar svona yfir hans og vorum þarna ýkt kósý, svo tók hann svona utan um aðra löppina og við vorum síðan oft eitthvað með hendurnar svona saman einhvernveginn, ýkt skritið að útskýra … svona eins og leiðast bara einhvað að fikta í höndunum á hvort öðru… ég er ýkt ringluð eitthvað…. veit ekkert hvað er í gangi. Veit ekkert hvort þetta þýði einhvað fyrir hann.

Svo er einn galli á þessu öllu saman, hann er í ýkt vondum félagskap. Reykir hass og viðurkennir að hann sé fíkill. Hann getur talað um þetta allt við mig og ég held að það hafi verið fyrsta ástæðan fyrir að hann byrjaði að treysta mér, því ég gat sagt honum af því sem ég hef upplifað með bróðir minn og treysti honum fyrir því öllu…. talaði ekki við neinn um það þannig að… En málið er að ég elska hann ykt mikið og vil helst vera með honum og reyna að hjálpa honum að snúa þessu við, það er alveg hægt og ég vil hjálpa honum með þetta eins og ég get……

Svo eitt í viðbót… Þegar maður er skakkur, myndi maður tala það út sem manni finnst í alvörunni eða bara svona eitthvað að fíflast…?? veit að bæði getur alveg komið til greina nátturulega…. en ég sagði honum að ég væri að fara að fá mér tattoo bráðlega bara á msn og hann var skakkur og kom ‘ætlaru að fá þér ‘I love …(nafnið sitt)’?
Svo hefur hann sagt við mig að hann elski mig meira en lífið sjálft, ástin sín, baby, babe …. oft einhvað svona


Vá ég veit ekki neitt sko….. ruglar ýkt í hausnum á mér og hann veit örugglega ekki að því sjálfur…

En ef þið mynduð setja ykkur í hans spor og gætuð sagt mér álit ykkar… og endilega fólk með reynslu á þessum sviðum þá vil ég fá að heyra frá ykkur. Nenni ekki að heyra einhvað í fólki sem veit ekkert um þetta og ætlar að skíta yfir þetta…. ég vil bara fá einhvað til að ég geti sjálf áttað mig almennilega á þessum aðstæðum sem ég er í.