auðvitað er enginn dómbær á hvaða bók sé best. Nema kannski sá sem hefur lesið allar bækur. Mér finnst sjálsftætt fólk eftir Bóbó Lax vera einstök upplifun og ein sú besta sem ég hef lesið. Annars eru LOTR og Hitchikers Guide mjög fínar, Discworld líka en þetta eru bara hreinustu afþreyingar, ekkert meira en það.
gott mál að losa sig við lélega leikmenn. Fowler gat ekki rassgat seinasta tímabilið með Liverpool og David Thompson var alveg rosalega mistækur, það var ekkert pláss fyrir svona b-leikmenn.
Það er svo sem ekkert skrítið að svona mistök eiga sér stað þar sem að framleiðendurnir endurnýja fólkið sem skrifar þættina fyrir hverja seríu eða aðra hverja seríu, held ég.
Þetta virðist alltaf vera rauði þráðurinn í gegnum alla umræðu sem á sér stað hérna á huga, þessi árátta hjá fólki að vera að gagnrýna annað fólk ef það fallbeygir ekki rétt eða eithvað slíkt. Geta ekki öll dýrin í skóginum verið vinir?
nei, nei ég er ekkert að dissa fowler, hann var búinn að gera góða hluti, en ég er bara að segja Liverpool voru góðir að losa sig við hann á þessu verði þegar hann var búin að vera svona lélegur í þó nokkurn tíma.
Það telst bara tíðinda efa að þetta Leeds lið vinnur eitthvað:) Liverpool tekur þessa uefa dollu með bundið fyrir augun. Alveg eins og Leeds var með bundið fyrir augun þegar þeir keyptu Robbie gamla Fowler.
Fín grein hjá þér. Annars finnst mér þetta nú frekar ofmetin mynd. Fékk nátttúrulega voðalega mikið “publicity” út á nektina á sínum tíma. Sharon Stone finnst mér ofleika heldur mikið og endirinn er nú bara “lame” tilraun til að reyna að vera eitthvað cool sem hún nær ekki að vera.
já, eitthvað af þessu er plantað af framleiðendum en mest partinn er þetta bara fólk sem er kvikindislega þenkjandiog fær eitthvað kikk út úr því að gabba fólk.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..