Hér eru nokkur mistök sem hafa orðið í Friends þáttunum :

TOW mr. Heckles dies: Í lok þáttarins, er Chandler að ávarpa Joey. En gerði smá mistök og kallaði hann Matt (matt le blanc)

TOW Ross is supposed to be on the discovery channel: Þegar Ross er að biðja Joey og Chandler um ráð um í hverju hann eigi að vera á Discovery Channel þá heldur hann á tveimur jökkum. Sá brúni er í glærum “umbúðum” en ekki sá blái. En svo þegar myndavélin snýr að honum aftur þá er sá blái í “glærunni” en sá brúni ekki…

Sería 4, annar þáttur : Rachel og vinirnir sitja saman á kaffihúsinu. Hárið á Rachel er Slegið og slétt. Svo færist myndavélin af henni og yfir á Gunther. Þegar myndavélin snýr aftur á Rachel þá er hárið á henni allt í einu uppi.

Sería 5, þáttur 21: Ross og Joey eru að leika sér með bolta í íbúðinni hennar Monicu. Fyrst er boltinn blár, svo stuttu seinna er hann allt í einu bleikur.

Þetta er í þættinum þegar Marcel heimtar að spila “in the jungle” aftur og aftur. Þegar Marcel er að spila lagið er hann nokkurn veginn dansandi, en það er hægt að sjá spegilmynd í sjónvarpinu af þjálfara apans þar sem hann heldur á einhverju til að fá apann til að dansa.

Í næstum öllum þáttunum er íbúð monicu nr 20 en íbúð strákanna nr 19. En í nokkrum af fyrstu þáttunum þá er íbúð monicu nr 5 en íbúð strákanna nr 4.

TOW Joey is Al Pacino´s butt double: Þegar vinirnir eru í íbúð monicu og eru að gera grín af Joey þá er ljós sem hengur yfir sófaborðinu hjá þeim. En í lok þáttarins, þegar Joey er að útskýra fyrir þeim að hann hafi verið rekinn, þá er ljósið horfið.

Í einum thanksgiving þættinum þá segir Chandler að hann hafi verið með fullan munninn þegar foreldrar hans sögðust vera að skilja. En í seinni thanksgiving þætti, þegar allir eru að muna til baka þá hugsar Chandler til baka í þann tíma en þá sér maður að hann er ekki með neitt í munninum.

Í lang fyrsta þættinum ever: Ross og Rachel sitja saman í íbúðinni hennar monicu og svo skipta þau síðustu kesskökunni í sinn hvorn helminginn. Rachel er eitthvað að fikta í sínum helmingi en brýtur hann síðan í tvennt. Rétt á eftir eru helmingarnir hennar allt í einu orðnir að einum helming aftur og hún leggur helminginn sinn á borðið.

TOW Rachel moves out: Þegar stelpurnar eru inni að hjálpa Rachel að flytja þá er monica í hvítum bol og rauðu pilsi. En stuttu seinna er hún komin í fjólubláum bol og gallabuxum….


Ég hef ekki skoðað þetta sjálf, fann þetta bara á netinu en endilega látið mig vita hvort þetta sé rétt….


Kveðja,
Isabel :)