Robbie Fowler að snúa tilbaka Robert Bernarnd Fowler, sóknarmaður Leeds og enska landsliðsins er nú allur að koma til eftir langvarandi meiðsli sem hafa haldið honum frá meirihluta tímabilsins.

Robbie Fowler spilaði með varaliði Leeds og skoraði eina markið í 1-0 sigri þess á 24. mínútu í leik gegn Sunderland. Honum var siðan skipt útaf um miðjan síðari hálfleikinn. Þetta var aðeins annar leikurinn sem Robbie Fowler spilar með Leeds á þessu keppnistímabili.

Leeds hafa átt í þónokkrum vandræðum með sóknarleikinn sinn það sem af er vetri, Viduka er ekki að ná að koma sér almennilega í gang og rauðu spjöldin hans Alan Smith segja alla söguna. Það er því jákvætt fyrir stuðnigsmenn Leeds og stuðningsmenn Robbie Fowler ( ég ) að hann sé að snúa aftur og hann verður líklega í leikmannahóp Leeds sem mætir Charlton á Elland Road á sunnudaginn. Svo bara að vona það fyrir Leeds að hann komi sér vel af stað og sýni sitt gamla form sem hann var í forðum þegar hann spilaði með Stan “The Man” Collymore í fremstu víglínu Liverpool liðsins á tímum Roy Evans.
__________________________