Ég sá á mbl.is að lögreglan hefði yfirheyrt fjögur 16ára ungmenni og gert heimilisleit hjá þeim á miðvikudag og fimmtudag. Við þessar húsleitarheimildir fundust sönnunargögn og játuðu þá tveir 16ára piltanna hrekkinn. Málið telst upplýst og ríkissaksóknara verið gerð grein fyrir málinu.

Nú leyfist mér að spyja:
Hvað í andskotanum réttlætir þessar húsleitir hjá grey krökkunum og vill Davíð virkilega að ríkissaksóknari fari með þetta mál fyrir dómsstóla? Fyrir kanski landráð???

Þetta var bara saklaus hrekkur sem engum varð meint af. Enda ekki furða að einhverjum detti þetta í hug því að þessir blessaðir spennufíklar sem vinna hjá ríkinu lifa sig inn í einhverja ódýra hasarmynd og sjá veirur í öllum bréfum sem opinberum stofnunum berast.
Þessar smásálir eygja kanski von um kauphækkun bráðlega um leið og fjöldi af sjúkrabílum/slökkviliðsbílum mæta á staðinn með látum og breiða hvít lök yfir opinberu spennufíklana.
Nú ætla ég ekki að gera lítið úr hættunni að einhverjir ferðamenn geti borið þessa skæðu veiru til landsins. En að póstur til ríkisstofnana eða kvikmyndahandrit til RUV sé til komin frá terroristum á ég afskaplega bágt með að trúa. Má þá ekki bara henda bréfinu í innsiglaðan plastpoka og skutlast með niðrá slysó?

Ef að Davíð Oddsson ætlar að refsa þessum krökkum grimmilega fyrir afbríðilegan húmor þeirra er það ekkert annað en mannvonska!

Cruxton
“True words are never spoken”