ein sem ég þekki var að fá kött úr Hrísey fyrir um 2 mánuðum og borgaði hún um 200.000 með öllum rannsóknum,staðfestingargjaldi,tollum,flugi,búri f/ flutninginn og já bara öllu. hennar kisa kom vel út þessari einangrun. sjálf flutti ég inn kött seint á síðasta ári (samkvæmt gömlu reglugerðinni) og hann var þarna í 8 vikur og hann kom í ágætis ástandi þaðan.