Ég er með þrjá persa sem ég er að fara með á sýningu núna í miðjum næsta mánuði og ég var svona að velta því fyrir mér hversu oft fólk væri að baða fyrir sýningar, hvenær þeir byrja og hvenær seinasta baðið fyrir sýninguna er og þ.h.

Ég byrjaði að baða í seinustu viku og er að fara að taka annað baðið núna í þessari viku með hárnæringu og ég var að pæla hvort að fólk væri að setja hárnæringu oftar eða bara einu sinni og hversu ört væri verið að baða.

Svo ég spyr, hvað er fólk að baða oft, baða með hárnæringu og hvenær baðið þið síðast fyrir sýninguna?
Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda, úti sem og Gabríel…