Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

samot
samot Notandi síðan fyrir 20 árum, 9 mánuðum 826 stig
Voldemort is my past, present and future.

Tom Marvolo Riddle gat gengið inn og út úr Hogwarts! (13 álit)

í Harry Potter fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Það var alltaf eitt sem angraði mig fyrst eftir að hafa lesið HBP, það var, hvernig vissi Draco af skápnum sem þurfti að laga? Jafnvel þótt hann hafi komist að þarfa herberginu í OotP þá skildi ég ekki hvernig hann gæti mögulega hafa séð brotinn skáp og hugsað: ahhh… ef ég laga þennan skáp skapar hann tengingu við Hlykkjasund og ég get komið drápurum inn til þess að drepa Dumbledore. Nei, það gekk ekki upp. Um síðustu helgi las ég síðan CoS og HBP enn eina ferðina og það var mjög heppilegt...

Aberforth Dumbledore (29 álit)

í Harry Potter fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Persóna mánaðarins að þessu sinni er hinn margumtalaði Aberforth Dumbledore, sem af hagkvæmni ástæðum við skulum einfaldlega kalla Abe. Abe er ein umtalaðasta persónan úr bókunum um þessar mundir, einkum vegna þess að margir ef ekki flestir telja hann vera með hálsmenið sem aftur, margir, ef ekki flestir telja vera einn helkrossinn. Hinsvegar vitum við lítið um þennan dularfulla en mikilvæga karakter sem drottning vor, J.K. Rowling hefur fært okkur úr smiðju ímyndunarafls síns. Þessi persóna...

Týndi þjónninn 7. kafli (18 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Jæja, þá er 7. kaflinn kominn. Loksins segja sumir en ohhh… ekki meira segja aðrir. Vona bara að þeir fyrr nefndu séu í meirihluta. Það hefur verið mikið að gera við ýmis ritstörf þannig að Harry Potter hefur þurft að sitja á hakanum, því miður. En hér er hann semsagt kominn, nú er búið að skipta um sjónarhorn og við sjáum hvað gerðist frá því að Harry datt niður. Harry!!! Lupin var fyrstur til að átta sig á því hvað var að gerast. Þau voru á flugi, Harry, Lupin, Tonks, Hermione, Skröggur og...

Týndi þjónninn 6. kafli (25 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Jaeja hér kemur 6. kafli. Ég ligg og sleiki sólina í Portúgal og thví var mikid nostur ad bua kaflann til. Mikid ad copy/paste til ad fa islensku stafina inn. Sma villa uppgvotadist hja mer. Thar sem eg les oftast ensku útgáfuna kalladi eg Trevor Delgome, Tom Marvolo Riddle. Thid attid ykku a thvi. Harry semsagt vaknar og er i likama Voldemorts. Vonandi likar ykkur og endilega komid med komment annars er ekkert gaman ad skrifa thetta :) Harry vaknaði við það að McGonnagal hristi á honum...

Týndi þjónninn 5.kafli (8 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hmmm… loksins er komið framhald. Það er eitt við þennann kafla að hann gengur bara alls ekki upp nema að þið hafið lesið kafla fjögur. Ég vill einnig nota tækifærið og koma með smá innlegg í þessa áhugaspuna umræðu sem hér hefur verið í gangi. Áhugaspunar eru yndislegt fyrirbæri og að sjá á hverjum degi nýja og nýja kafla og nýjar sögur er frábært. Ég tek undir það að margar sögurnar eru kanski ekki vel gerðar eða skrifaðar en málið er það að mergir hérna inn á huga eru ennþá í grunnskóla og...

Týndi þjónninn, 4.kafli. (9 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Ég veit ekki afhverju ég vandi mig á að skrifa nokkur orð á undan öllu sem ég skrifa en þar sem það er orðið að vana verðið þið bara að sætta ykkur við það. Eflaust gerði ég það til þess að byrjun kaflans kæmi ekki fram á aðalsíðunni, hvað um það. Hérna kemur framhaldið af Týnda þjóninum, ég var spurður afhverju ég breytti frá Trygga þjóninum yfir í Týnda þjóninn og get ekki öðru svarað en að það komi í ljós í lok sögunnar. Ég vill Þakka Tzipporah fyrir frábærar ráðleggingar sem vonandi...

Týndi þjónninn 1-3 kafli (8 álit)

í Harry Potter fyrir 20 árum
Biðst afsökunar á brotthvarfi mínu frá draumaheimum Potter bókanna og netsamfélagi hugverja. Það kom ýmislegt upp sem gerði mér ómögulegt að halda áfram með söguna mína. En nú er ég sestur niður og er að skipuleggja framhaldið á nýjann leik. (Þegar maður skrifar sögu er maður alltaf að gefa eitthvað af sjálfum sér. Sá hluti sem ég var að gefa af mér hvarf). En nú skín sól í heiði og lokaprófin nálgast, próf sem munu ákvarða hvernig háskólamenntun ég mun eiga kost á og hvað er þá betra en að...

Týndi þjónninn 3. Kafli ***spoiler*** (24 álit)

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hérna kemur þriðji kafli. Vill bara enn og aftur minna fólk á að vera ekki að lesa þetta ef það hefur ekki lesið 5 bókina. Einnig vill ég hvetja fólk til að skrifa ályt sitt á sögunni. Mjög skemtilegt að fá viðbrögð, góð og slæm. Nú, ef við víkjum aðeins að hvar við erum stödd þá er þetta bara útúrdúr sem ég þröngvaði upp á sjálfann mig. Kafli 2 og 3. ættu í raun bara að vera einn kafli en ég hald það sé betra að gera þetta svona. Styttri kaflar sem ég get þá sent örar inn. Núna leið...

Týndi þjónninn, kafli 2 ****SPOILER***** (13 álit)

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Jæja, loksins loksins kom kafli 2 hann er búinn að vera tilbúinn lengi en enginn búinn að fara yfir hann. Það er alveg eins og í kafla eitt fullt af spoilerum í þessu kafla svo að þið sem enn hafið ekki lesið 5. bókina ættuð ekki að lesa meira. 2. Kafli Harry tók koffortið sem innihélt aðeins föt til skiptanna, knippi af pargamentrúllum og skriffæri, í aðra höndina og Hedwig sem sat hin virðulegasta í búri sínu, í hina höndina. Það var skemmtileg tilbreyting að koffortið var ekki níðþungt...

***spoiler***Harry Potter og tryggi þjónninn***spoiler*** (20 álit)

í Harry Potter fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þetta fanfic verður frekar langt (ca. 20-30 kaflar) og vonast ég til að geta komið vikulega með kafla, en við skulum sjá til hvernig það gengur. Þetta fanfic byggist MJÖG mikið á 5. bókinni og ef þið eruð ekki búin að lesa hana mun þetta fanfic skemma mikið fyrir ykkur, svo ýtið á back. Rutep ég vill þakka þér fyrir málfræði leiðréttingar og innskot (og öll HP samtölin í vinnunni) En ég vona að þið njótið vel. 1. kafli Dursley fjölskyldan. Jafnvel á enskum mælikvarða var þetta sumar mjög...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok