Þetta er alveg frábært og virkar fínt….. Keep up the good work man :) Ég get varla beðið eftir Gestabókin (2/2) þetta er alveg frábærlega skrifað hjá þér og engar villur….
Og Vodafone er nýja heitið yfir Tal og Íslandssíma. Það verður gaman að sjá hvort að þeir hafi eitthvað í Landssíma Íslands!! það verða örugglega fullt af tilboðum núna og barist á öllum vígstöðum! Nei, bara að láta ykkur vita :)
Blessaður Haukari vertu ekkert að pirra þig á þessum krakkaskít sem að álpast hérna inn svona við og við en sem betur fer þá stoppa þeir alltaf stutt við. En Djöf…. var ég sáttur við mína menn að hafa svoleiðis kafsigilt frömurum svo þeim sveið ærlega í rassinn eftir leikinn!!! Þetta var bara einskonar upphitunarleikur fyrir Íslandsmeistaranna núverandi og þáverandi 2002. Mér sýnist ekkert íslenskt lið getað stöðvað þessa hraðlest sem að Viggó er búinn að búa til. Áfram Haukar!!! p.s. Einn...
Ég væri nú alveg til í að vita frá hverjum þú hefur heyrt svoddan kjaftasögu!!! Við Haukamenn puðum og puðum og svo fær maður þetta í hausinn að maður sé að heimta peninga fyrir stuðninginn!!!! Maður styður sitt lið einungis vegna þess að maður vill að sitt lið sé fremst í flokki!! Enn og aftur segðu mér BonoSveins hver hefur logið svona að þér?
hóst hóst og aftur hóst!!!! er UMFA með hvað? Ég veit ekki betur en að Haukar séu með næst besta stuðningslið á landinu og skef ekkert utan af því!! en jú það er rétt að KA er með besta stuðningsliðið og getur enginn toppað þá þó svo að það væri reynt. Mér líst bara mjög vel á þessa skoðanakönnun!! ÁFRAM Haukar!!!
Já nokkuð til í því en Haukarnir eru víst að missa aðeins flugið núna en þeir hrapa samt ekki til jarðar heldur rétt svo snerta jörðuna eins og gerðist núna á sunnudaginn á móti Frömurum en síðan er leiðin aðeins uppá við eftir þetta!!! það verður spennandi að sjá hvernig leikurinn fer á miðvikudaginn þegar Haukar og Valsarar mætast í annað skiptið! Haukarnir verða bikarmeistara annað árið í röð!! það er pottþétt mál!
Ert þú þá þessi gaur sem að hangir heima hjá þér og borar í nefið á meðan aðrir fara í bæinn og skemmta sér!!!! Hvaða skemmtistað stundar þú eiginlega…..!! þú ert svona gaur sem að hangir örugglega á Prikinu eða þess háttar stöðum!!! en það er jafnvel meira af fólki sem að dópar þar en annarstaðar því jú það fólk sem að stundar prikið er það fólk sem að stundaði Thomsen áður!! (*hint*) (*hint*)
Já það verður mjög skemmtilegt að sjá Haukana vinna Valsmenn öðru sinni á innan við viku :) En ég vona að það verði meira spennandi leikur og svo vona ég að Guðjón og félagi dæmi ekki þennan leik því hann skyggði svolítið á þennan líka frábæra leik okkar manna síðast :) Áfram Haukar!!!
Ég myndi biðja fólk um að mæta frekar snemma svona 19:30 í síðasta lagi því það verður mikið af fólki og því betra að koma fyrr svo hægt sé að losna undan troðningi :) Mér hlakkar ekkert smá til að sjá hvernig þessi leikur fer!! En áfram Haukar!!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..